Þriðjudagur, 16. október 2007
Áfengi og matvöruverslanir
Í gær var á Alþingi mælt fyrir frumvarpi sem gerir ráð fyrir að selja megi létt vín og bjór í matvöruverslunum. Liðlega fjórðungur þingmanna er öruggur í stuðningi sínum við málið því flutningsmenn eru samtals 17. Flutningsmenn eru því vongóðir um að nú náist þetta markmið loksins, en margbúið er að reyna að breyta þessum lagaákvæðum.
Röksemdir með þessari breytingu virðast helst tvær: Það sé óhæfa að þurfa að kaupa áfengi í búð sem rekin er af ríkinu og það sé svo þægilegt að geta gripið rauðvínið, hvítvínið eða bjórinn með sér um leið og mjólkin og brauðið, að ógleymdri steikinni, er keypt.
Þetta finnast mér slæm rök. Rannsóknir sýna að sala áfengis í matvörubúðum hefur í för með sér aukna neyslu af því að aðgengi verður auðveldara. Á þetta ekki síst við um unglinga og yngra fólk. Ég tel að vandi okkar Íslendinga af áfengisnotkun og áfengismisnotkun sé nægilegur þótt við tökum ekki ákvarðanir sem nánast öruggt er að auki á þann vanda.
Ef menn eru á móti því að ríkið selji áfengi þá er best að breyta því, afnema einokun ríkisins og opna fyrir það að einkaaðilar geti átt og rekið vínbúðir. Það þarf ekki í leiðinni að leyfa sölu áfengis í matvöruverslunum. Þetta eru tveir aðskildir hlutir sem engin ástæða er til að blanda saman. Ég tel að við eigum að halda okkur við það að selja áfengi í aðgreindum verslunum þannig að þeir sem vilja kaupa áfengi þurfi að fara í sérstaka vínbúð til þess.
Ég tek heils hugar undir leiðara Morgunblaðsins í dag um þetta mál. Þetta frumvarp er engin ástæða til að samþykkja. Áfengi er ekki eins og hver önnur neysluvara. Hér er áfengisvandi sem ekki á að auka við með breytingum af þessu tagi.
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
- addabogga
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- andriheidar
- gumson
- audbergur
- abg
- axelaxelsson
- armannkr
- arniarna
- asabjorg
- arh
- aslaugfridriks
- astamoller
- astar
- kaffi
- birgir
- launafolk
- bjarnimax
- borgar
- braskarinn
- gattin
- bryndisharalds
- brandarar
- carlgranz
- rustikus
- deiglan
- draumur
- einarbb
- ekg
- jaxlinn
- elinora
- ellasprella
- ellyarmanns
- erla
- erlaosk
- erna-h
- fsfi
- fhg
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisligislason
- neytendatalsmadur
- grazyna
- gudni-is
- gelin
- gudbjorng
- fasteignir
- gudfinna
- lucas
- gudmundurmagnusson
- gudrunshil
- gudruntora
- gunnaraxel
- gunnargunn
- laugardalur
- gylfithor
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- jarnskvisan
- heimirhilmars
- hehau
- helgi-sigmunds
- herdis
- himmalingur
- hjaltisig
- disdis
- holmfridurge
- tulinius
- idno
- ingabesta
- ingisund
- golli
- ibb
- astromix
- johannalfred
- stjornun
- jonmagnusson
- jonsnae
- juliusvalsson
- kolbrunb
- kristinhrefna
- lara
- lotta
- nytjagardar
- altice
- matarbitinn
- maggaelin
- martagudjonsdottir
- mal214
- morgunbladid
- olavia
- olinathorv
- olofnordal
- omarbjarki
- huldumenn
- otti
- publicservant
- iceland
- pjeturstefans
- ragnar73
- ragnheidurrikhardsdottir
- ragnhildur
- rannveigmst
- runirokk
- rynir
- trumal
- salvor
- sirrycoach
- sigurbjorns
- sv11
- sighauk
- sij
- sigurdurir
- ohyes
- sigurdurkari
- siggisig
- siggith
- sigurjonsigurdsson
- zunzilla
- sms
- 1301493169
- stefaniasig
- stebbifr
- brv
- sveinni
- saethorhelgi
- thelmaasdisar
- grasteinn
- ubk
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- va
- villidenni
- thorbjorghelga
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- thoragud
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- iceberg
- toddi
Athugasemdir
Sammála.
Sigurður Þórðarson, 16.10.2007 kl. 22:36
Flott Dögg!!!
Ása (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 22:43
Þetta er ágætur pistill Dögg en mér finnst þú full fljót á þér. Þú segir að rannsóknir sýni að þetta muni leiða til aukinnar drykkju, ég spyr hvaða rannsóknir. Nú fer það ekki á milli mála að aðgengi að áfengi á íslandi er nokkuð gott og síðustu 10 árum hefur útibúum ÁTVR fjölgað gífurlega, samt sem áður er ekki hægt að segja að vandinn hafi aukist.
Það er flott að fólk hafi misjafnar skoðanir á þessu en mér finnst að rök þeirra sem er á móti séu svolítið mikið um fullyrðingar án þess að þær endilega standist nánari skoðun.
Jón Ingvar Bragason, 17.10.2007 kl. 07:46
Ef áfengissala verður gefin frjáls mun framboð á víni minnka. Ég hlakka persónulega ekki til að kaupa Euroshopper rauðvínsbeljur.
Ég segi þetta út frá fenginni reynslu af einkavæðingu lyfjaverslana.
Þegar við lærum að koma í veg fyrir fákeppni væri ég til í að endurskoða þessa afstöðu. Þangað til er ég sáttur við að gera mér sérferð út í ÁTVR.
Kári Harðarson, 17.10.2007 kl. 09:49
Sammála þér. Áfengi á heima í sérverslunum að mínu mati og það mun aðeins auka þau vandamál sem áfengi fylgja að selja það í matvöruverslunum.
Dísa Dóra, 17.10.2007 kl. 09:52
Auðvitað væri þægilegt að geta kippt með sér einni rauðvín um leið og maður hleypur fram hjá kjötborðinu í Hagkaupum. En burt séð frá því hvort áfengisneysla eykst eða ekki, held ég að þetta myndi aldrei ganga upp miðað við þann fjöldar erlends starfsfólks á kössum sem ekki talar íslensku. Hver á að spyrja um skilríki? Hvernig á að þjálfa fólk í að þekkja fölsuð skilríki o.s.frv.? Sjálf var ég að vinna í ÁTVR einu sinni og við fengum enga þjálfun og enn þann dag í dag er starfsfólk feimið, að því er virðist, að biðja um skilríki þótt það kunni að hafa aukist örlítið.
Ef áfengi yrði selt í matvöruverslunum, yrðu þá settir upp sérstakir kassar með íslensku starfsfólki, 20 ára og eldra, sem afgreiðir fólk með áfengi? Ég leyfi mér að efast um það!
Ásta Sól (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 11:03
Eigum við þá ekki bara líka að leggja niður allt sem kallast áfengisleyfi og leyfa mér og þér að selja?
Ásta Sól (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 16:54
Ég held að það sé hárrétt ábending hjá Kára að einn fylgifiskur þessa, ef samþykkt verður, er að úrval á léttvínstegundum mun minnka verulega. Það mun engin matvörubúð bjóða upp á það úrval sem nú er í boði í vínbúðum ÁTVR.
Dögg Pálsdóttir, 17.10.2007 kl. 18:19
Sammál þér Dögg. Þetta er í ágætis farvegi, og engin ástæða a' breita því. Nægur er vandinn í þjóðélaginu.
Einar Vignir Einarsson, 17.10.2007 kl. 20:37
Sammála þér Dögg
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 17.10.2007 kl. 21:52
Þau málefni Dögg sem ég hef áhuga fyrir, þar talar þú eins og orðin komi út úr mínum munni og annað !!!!!! sá sem spyr um rannsóknir þarna uppi, þá er alþjóða heilbrigðisstofnun búin að sýna fram á þettaog það kom fram í þætti um daginn, man ekki hvaða þáttur það var, og þá var maður þar sem talaði um að fylgni væri milli þess að:
aukið aðgengi að áfengi= aukin neysla= meiri vandamál !!!!
Þetta kom í ljós þar svo að þeir sem vilja mótmæla verða að gera það við WHO
Þú ert alltaf flott hér inni Dögg !
Bestu kveðjur,
Inga Lára Helgadóttir
Inga Lára Helgadóttir, 18.10.2007 kl. 17:28
Alfjörlega sammála nema hvað ég er hræddur um að ef einkaaðilar fái að reka vínbúðir muni allar áfengisvarnir í landinu hrynja fljótlega í gróðahyggju. Ég held reyndar að forsvarsmenn frumvarpsins vaði mikla villu um það að það séu aðeins tiltölulega fáir sem misnota áfengi. Það eru ekki bara einhvejrir rónar. Það er mikill fjöldi sem flestir eru í fullu starfi og allt það en eru samt alkar og valda sér og öðrum ölum þeim vanda sem því fylgir. Svo finnst mér það sjálfhverf sællífisrök að þykja það vega þungt að geta keypt sér vín fyrir steikina (sem Íslendingar hafa aldrei vanist að drekka með fín vín) í matvöruverslunum miðað við þann mikla vanda sem áfegnisneysla veldur og mun mjög líklega vaxa ef áfengi verður selt í matvörubúðum: Líf margra fjölskylda í rústum versus þægindalegheit fyrir sunnudagssteikina. Er ekki eitthvað að verðmætamati þeirra sem nota þessi þægindalegaheitarök?
Sigurður Þór Guðjónsson, 20.10.2007 kl. 11:47
Sunnudagur til sælu fyrir þig
Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 21.10.2007 kl. 10:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.