Miðvikudagur, 20. maí 2009
Ofbeldisfullur faðir
Á þessum tíma árs eru meistaranemar í hinum ýmsu fagreinum að ganga frá meistaraprófsritgerðum sínum og verja þær. Athygli mín var vakin á vörn meistaraprófsritgerðar sem verður við lagadeild HÍ nk. föstudag.
Af lýsingu á efni ritgerðarinnar segir m.a.:
Í erindinu verður gerð grein fyrir möguleikum ofbeldisfullra foreldra til að öðlast forsjá barna sinna samkvæmt íslenskum rétti. Enn fremur hvaða áhrif ofbeldi innan veggja heimilisins hefur á ákvarðanir um umgengni barns við ofbeldisfullt foreldri sem það býr ekki hjá. Loks verða niðurstöður rannsóknarinnar skoðaðar í ljósi þess hvaða vernd börnum er tryggð samkvæmt íslenskum rétti og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, gegn hvers kyns ofbeldi.
Augljóst virðist því að ritgerðin fjallar um ofbeldi foreldra og hvaða áhrif það hefur á möguleika gagnvart forsjá. Það er bæði verðugt og þarft umfjöllunarefni.
Þess vegna hnýt ég um það að heiti ritgerðarinnar er Getur ofbeldisfullur faðir fengið forsjá barna sinna? Miðað við lýsinguna sýnist að eðlilegra heiti hefði verið Getur ofbeldisfullt foreldri fengið forsjá barna sinna? Það er umhugsunarefni af hverju annað foreldrið er dregið fram umfram hitt í titli ritgerðar sem fjallar um foreldra, ofbeldi og möguleika til forsjár. Erum við ekki komin lengra í að forðast staðlaðar kynjaímyndir?
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
- addabogga
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- andriheidar
- gumson
- audbergur
- abg
- axelaxelsson
- armannkr
- arniarna
- asabjorg
- arh
- aslaugfridriks
- astamoller
- astar
- kaffi
- birgir
- launafolk
- bjarnimax
- borgar
- braskarinn
- gattin
- bryndisharalds
- brandarar
- carlgranz
- rustikus
- deiglan
- draumur
- einarbb
- ekg
- jaxlinn
- elinora
- ellasprella
- ellyarmanns
- erla
- erlaosk
- erna-h
- fsfi
- fhg
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisligislason
- neytendatalsmadur
- grazyna
- gudni-is
- gelin
- gudbjorng
- fasteignir
- gudfinna
- lucas
- gudmundurmagnusson
- gudrunshil
- gudruntora
- gunnaraxel
- gunnargunn
- laugardalur
- gylfithor
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- jarnskvisan
- heimirhilmars
- hehau
- helgi-sigmunds
- herdis
- himmalingur
- hjaltisig
- disdis
- holmfridurge
- tulinius
- idno
- ingabesta
- ingisund
- golli
- ibb
- astromix
- johannalfred
- stjornun
- jonmagnusson
- jonsnae
- juliusvalsson
- kolbrunb
- kristinhrefna
- lara
- lotta
- nytjagardar
- altice
- matarbitinn
- maggaelin
- martagudjonsdottir
- mal214
- morgunbladid
- olavia
- olinathorv
- olofnordal
- omarbjarki
- huldumenn
- otti
- publicservant
- iceland
- pjeturstefans
- ragnar73
- ragnheidurrikhardsdottir
- ragnhildur
- rannveigmst
- runirokk
- rynir
- trumal
- salvor
- sirrycoach
- sigurbjorns
- sv11
- sighauk
- sij
- sigurdurir
- ohyes
- sigurdurkari
- siggisig
- siggith
- sigurjonsigurdsson
- zunzilla
- sms
- 1301493169
- stefaniasig
- stebbifr
- brv
- sveinni
- saethorhelgi
- thelmaasdisar
- grasteinn
- ubk
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- va
- villidenni
- thorbjorghelga
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- thoragud
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- iceberg
- toddi
Athugasemdir
Er þetta ekki bara afmörkun ritgerðarefnis sem endurspeglast í titli ritgerðarinnar?
Ef réttarframkvæmdin fjallar afskaplega sjaldan um ofbeldisgjarnar mæður en mun oftar um ofbeldisgjarna feður, og umfjöllunarefnið hverfist um þá réttarframkvæmd, gæti þá ekki verið villandi að fram kæmi orðið "foreldrar" í titlinum? Er alltaf hægt að draga ályktanir um réttarstöðu móður út frá stöðu föður?
Er svo ekki meðvitað hægt að ákveða að afmarka umfjöllun ritgerðar við umfjöllun um karla en sleppa konum, svipað og að kjósa að fjalla bara um hlutafélög í ritgerð en sleppa einkahlutafélögum, eða öfugt.
Þú hlýtur að lesa þessa ritgerð og koma svo með ritdóm að því loknu á blogginu, ég treysti á það.
Benedikt Benediktsson (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 12:57
Sæll Benedikt. Takk fyrir ábendinguna en í lýsingu á rannsóknarefninu sem ég tek orðrétta upp í færslunni er sérstaklega talað um foreldra, ekki feður. Það bendir ekki til að rannsóknarefnið sé afmarkað við feður. Það var tilefni færslunnar. Ég mun reyna að koma höndum yfir ritgerðina og lesa hana - og jafnvel blogga um hana á nýjan leik. Bkv. Döggh
Dögg Pálsdóttir, 20.5.2009 kl. 18:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.