Laugardagur, 28. mars 2009
Í samhengi við gjafalán til fjárfestingabanka
Já, setjum þessar fjárhæðir endilega í samhengi við annað, t.d. gjafalán ríkissjóðs til tveggja fjárfestingabanka sem Morgunblaðið hefur fjallað um í vikunni.
Ríkissjóður lánaði nýverið tveimur fjárfestingabönkum, að því er virðist án mikillar umhugsunar, 42 milljarða til sjö ára á 2% verðtryggðum vöxtum. Kunnugir telja að eðlilegir verðtryggðir vextir á lánunum til bankanna hefðu verið a.m.k. 10%. Gróft metið má því telja að ríkissjóður sé að gefa hluthöfum bankanna a.m.k. tæpa 3,5 milljarða á ári.
Á sjö ára lánstíma gefur ríkissjóður hluthöfunum sennilega hátt í 25 milljarða króna. Sú fjárhæð sýnist tæplega 10% af því sem sagt er í fréttinni að það muni kosta að fella flatt niður 20% húsnæðisskulda u.þ.b. 70.000 heimila í landinu. Ríkissjóður gerði enga kröfu til hlutafjár í bönkunum sem nutu þessarar fyrirgreiðslu. Því halda hluthafarnir öllu, óskertu.
Í verkefnaskrá ríkisstjórnar VG og Samfylkingarinnar, sem stendur að þessum örlætisgerningum í þágu hluthafa fjárfestingabankanna tveggja, segir m.a.
...Stjórnin byggir því á mjög aðhaldssamri og ábyrgri stefnu í efnahags-og ríkisfjármálum, en mun jafnframt hafa í heiðri félagsleg gildi, hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, kvenfrelsi, jöfnuð og réttlæti. ... (leturbreyting DP)
Niðurfelling skulda óhagkvæm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Útvarp
Bloggvinir
- addabogga
- alla
- malacai
- almaogfreyja
- andriheidar
- gumson
- audbergur
- abg
- axelaxelsson
- armannkr
- arniarna
- asabjorg
- arh
- aslaugfridriks
- astamoller
- astar
- kaffi
- birgir
- launafolk
- bjarnimax
- borgar
- braskarinn
- gattin
- bryndisharalds
- brandarar
- carlgranz
- rustikus
- deiglan
- draumur
- einarbb
- ekg
- jaxlinn
- elinora
- ellasprella
- ellyarmanns
- erla
- erlaosk
- erna-h
- fsfi
- fhg
- gerdurpalma112
- gisliivars
- gisligislason
- neytendatalsmadur
- grazyna
- gudni-is
- gelin
- gudbjorng
- fasteignir
- gudfinna
- lucas
- gudmundurmagnusson
- gudrunshil
- gudruntora
- gunnaraxel
- gunnargunn
- laugardalur
- gylfithor
- hallarut
- heidistrand
- heidathord
- jarnskvisan
- heimirhilmars
- hehau
- helgi-sigmunds
- herdis
- himmalingur
- hjaltisig
- disdis
- holmfridurge
- tulinius
- idno
- ingabesta
- ingisund
- golli
- ibb
- astromix
- johannalfred
- stjornun
- jonmagnusson
- jonsnae
- juliusvalsson
- kolbrunb
- kristinhrefna
- lara
- lotta
- nytjagardar
- altice
- matarbitinn
- maggaelin
- martagudjonsdottir
- mal214
- morgunbladid
- olavia
- olinathorv
- olofnordal
- omarbjarki
- huldumenn
- otti
- publicservant
- iceland
- pjeturstefans
- ragnar73
- ragnheidurrikhardsdottir
- ragnhildur
- rannveigmst
- runirokk
- rynir
- trumal
- salvor
- sirrycoach
- sigurbjorns
- sv11
- sighauk
- sij
- sigurdurir
- ohyes
- sigurdurkari
- siggisig
- siggith
- sigurjonsigurdsson
- zunzilla
- sms
- 1301493169
- stefaniasig
- stebbifr
- brv
- sveinni
- saethorhelgi
- thelmaasdisar
- grasteinn
- ubk
- valgerdurhalldorsdottir
- vefritid
- va
- villidenni
- thorbjorghelga
- steinibriem
- thorsteinnhelgi
- thoragud
- thorasig
- tbs
- thorhallurheimisson
- iceberg
- toddi
Athugasemdir
Mér finnst að það vanti einnig í umræðuna að samkv. upplýsingum síðustu vikna hafi hluthafar og einkavinir Kaupþing banka, rétt fyrir hrunið, lánað sér uppreiknað 570 milljarða kr. Samkv. gagnagrunni Seðlabankans er verið að tala um að það séu 78 þúsund heimili í landinu þannig að upphæðin sem útrásarvíkingarnir fengu sér að láni í Kaupþingi mundi nægja til að greiða niður lán allra heimila landsins um 7,3 milljónir króna. Þarna er bara verið að fjalla um einn banka, ekki hefur komið fram hve mikla fjármuni eigendur og vildarvinir hinna bankanna, Landsbankans, Glitnis og Sraums Burðarás hafi verið að lána sér rétt fyrir hrunið.
Magnús Hreinsson (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 08:51
Afstaða stjórvalda í þessu máli er úti á túni.
Hagsmunasamtök heimilanna hafa lagt til mjög hóflega og sanngjarna aðferð um hvernig megi taka á málinu.
Hún er sú að boðið verði upp á að gengistryggðum lánum verði breytt verðtryggð í krónulán frá lántökudegi og samhliða takmarkist verðbótaþáttur við efri mörk verðbólgumarkmiða Seðlabankans, 4%, frá og með 1. janúar 2008.
Forvitinlegt væri að sjá útreikninga reiknimeistara ríkisins á þessari aðgerð.
Marinó G. Njálsson hjá HH hefur reiknað út að þetta séu 206 milljarðar.
Svo má ekki gleyma að minnast á ávinningin af slíkum aðgerðum.
Þórður Björn Sigurðsson, 28.3.2009 kl. 11:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.