Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Seint ...

geta pólitískir andstæðingar dómsmálaráðherra haldið því fram að með þessari skipun hafi hann hyglt pólitískum flokksbróður. En kannski munu einhverjir halda því fram að pólitísk samtrygging hafi hér verið á ferð. Sjálfri finnst mér þetta góð ráðstöfun. Í mínum huga er ekki vafi um það að sú sem skipuð var sé vel hæf í starfið, jafnvel þótt hún sé "bara" fv. alþingismaður. Ég óska Margréti til hamingju með skipunina. Ég veit að hún á eftir að stýra málum á Litla-Hrauni með miklum sóma og hefði sjálf ekki treyst neinum öðrum betur til starfans.
mbl.is Margrét ráðin forstöðumaður Litla-Hrauns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugur VG stefnir

augljóslega á minnihlutastjórn þeirra og Samfylkingar. Ekki erfitt að lesa það úr þessum orðum formanns VG. Enda fleiri stólar fyrir þá í slíkri stjórn en í þjóðstjórn.
mbl.is Vinstri grænir reiðubúnir til viðræðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn veit

hvað átt hefur fyrr en misst hefur ...

Vonandi vöknum við ekki upp við það að fráfarandi ríkisstjórn hafi eftir allt saman verið illskárri en það sem eftir kemur. Vinstri stjórnir hafa aldrei reynst vel á Íslandi. Það segir sagan okkur.

Fráfarandi ríkisstjórn hefur gert ýmis mistök frá hruninu. En hún hefur líka gert ýmislegt - en verið ákaflega léleg í að upplýsa almenning um það. Á því fellur hún. Og langlundargeðinu gagnvart bankastjórn Seðlabanka Íslands.


mbl.is Geir til Bessastaða klukkan 16
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvæntur snúningur

Það kemur á óvart að allt í einu skuli Jóhanna Sigurðardóttir dregin upp úr hatti og boðin fram sem forsætisráðherra af hálfu Samfylkingarinnar. Byggir það á því að í skoðanakönnunum nýtur hún mest trausts kjósenda?

Staðreyndin er sú að Samfylkingin setti fram kröfu sem fyrirfram var vitað að Sjálfstæðisflokkurinn gat ekki fallist á og enginn stjórnmálaflokkur hefði fallist á undir sömu kringumstæðum. A.m.k. gat ég ekki skilið orð stjórnmálafræðings sem verið var að tala við á RÚV með öðrum hætti.

Mér sýnist ljóst að þjóðstjórn verður ekki mynduð enda skilyrði Samfylkingarinnar að hún verði leidd af Jóhönnu Sigurðardóttur. Minnihlutastjórn Samfylkingar og VG með stuðningi Framsóknarflokksins undir forsæti Jóhönnu Sigurðardóttur er sú stjórn sem mynduð verður og mun (vonandi) lafa fram yfir kosningar. En athyglisvert var að utanríkisráðherra útilokaði ekki að fresta kosningum. Hvað skyldi VG, sem hrópað hefur eftir kosningum strax, segi við því, þegar þeir verða komnir í stólana?

Það er kaldhæðnislegt að bankastjórn Seðlabankans situr enn þótt ríkisstjórnin sé fallin. Í raun var það þaulseta bankastjórnar Seðlabanka Íslands sem á endanum felldi ríkisstjórnina. 


mbl.is Jóhanna næsti forsætisráðherra?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarslit staðreynd ...

Það er augljóst að Samfylkingin vildi slíta stjórninni. Að setja fram kröfu sem fyrirfram er augljóst að Sjálfstæðisflokkurinn gat ekki gengið að er skýrasta vitnisburðurinn um það. Málið snerist greinilega ekki um persónu forsætisráðherra því hann skýrir frá því að hann hafi boðið að stíga til hliðar þannig að varaformaður Sjálfstæðisflokkurinn tæki við sem forsætisráðherra. Það er líka hárrétt hjá forsætisráðherra að Samfylkingin er flokkur í tætlum. Það er búið að sjást síðustu viku. Spurningin er hversu stjórntæk Samfylkingin er? Það er kannski umhugsunarefni fyrir hverja þá sem íhuga að fara í stjórnarsamstarf með þeim flokki. Réttilega er utanríkisráðherra límið í flokknum, rétt eins og hún var í R-listanum. Þegar hún er ekki á staðnum fer allt í uppnám. Skyldi Samfylkingin bjóða fram undir einum lista í vor? Ekki alveg víst.
mbl.is Stjórnarsamstarfi lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískur metnaður ræður för ...

Það virðist vera að það eina sem stjórnar för Samfylkingar nú sé pólitískur metnaður formanns hennar að að mynda ráðuneyti og verða forsætisráðherra. Vegna heilsufars formannsins er þó allt eins líklegt að Össur Skarphéðinsson verði fúnkerandi forsætisráðherra meira og minna fram að kosningum. Þetta er með ólíkindum. 

En kannski er þetta ágætt. VG fá nú að sýna hvað í þeim býr. Þeir hafa sýnt og sannað að þeir hafa allar lausnirnar. Og formaður VG eftir 18 ára eyðimerkurgöngu utan ríkisstjórnar fær loksins ráðherrastól til að setjast í. VG og Samfylking ákveða kannski líka að sækja um aðild að EB fyrir kosningar?

Viðbót:

Þegar maður hefur rangt fyrir sér og ber einstaklinga röngum sökum ber manni að biðja afsökunar. Það geri ég hér með. Ég greinilega hafði rangt fyrir mér varðandi pólitískan metnað formanns Samfylkingarinnar og bið afsökunar á því að hafa vænt hana ranglega um þetta. Í ljós er komið að forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar er Jóhanna Sigurðardóttir, ekki Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.


mbl.is Minnihlutastjórn einn möguleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsætisráðuneytið

Það er óskiljanlegt ef ágreiningur stjórnarflokkana snýst fyrst og fremst um það að formaður Samfylkingarinnar vill taka að sér verkstjórnina í forsætisráðuneytinu fram að kosningum. Hefur formaður Samfylkingarinnar heilsu til að taka við forsætisráðuneytinu? Og ef hún forfallast, hver er þá staðgengill hennar? Össur Skarphéðinsson? Það er slæmt ef persónulegur metnaður einstaklinga stýrir för en ekki þjóðarheill. Það kann aldrei góðri lukku að stýra. Líf ríkisstjórnarinnar ræðst greinilega í dag og þar með hvert stefnir hér fram að kosningum.

Viðbót:

Eins og ég er búin að segja við aðra færslu hér fyrir framan - ég hafði formann Samfylkingarinnar fyrir rangri sök og bið hana velvirðingar á því. Forsætisráðherraefni Samfylkingarinnar var Jóhanna Sigurðardóttir, ekki formaður Samfylkinginarinnar.


mbl.is Vilja taka að sér verkstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært svæði

Ég hef ekki verið tíður gestur í Bláfjöllum undanfarin ár. Ég hafði raunar ekki komið þangað svo árum skiptir þegar ég byrjaði á gönguskíðanámskeiði í síðustu viku. Námskeiðið hélt áfram í gær og það var frábært að vera þarna. Við Reykvíkingar eigum svo sannarlega glæsilega útivistaraðstöðu í Bláfjöllum. Verst að það snjóar ekki nægilega á vetrum til að hún nýtist sem skyldi. Þess vegna er um að gera að nota tækifærið þá sjaldan aðstæður leyfa.
mbl.is Góð stemning í Bláfjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegna fortíðar eða framtíðar?

Það kemur á óvart að afsögn viðskiptaráðherra hafi komið utanríkisráðherra á óvart. Hefur ekki legið í loftinu frá því í haust að viðskiptaráðherra kynni að segja af sér? Það sem hefur komið mest á óvart er hversu langan tíma þetta er búið að taka. Hversu vel eða illa viðskiptaráðherra hefur staðið sig er málinu óviðkomandi. Viðskiptaráðherra er að axla það sem löngum hefur verið kallað pólitísk ábyrgð. Slík ábyrgð er stundum öxluð án þess að ráðherrann sjálfur hafi gert eitthvað rangt. Fjölmörg dæmi eru um slíkt erlendis.

Þá er sérkennilegt að utanríkisráðherra segi afsögn stjórnar FME ekki vera uppgjör við fortíðina. Afsögn stjórnar FME er ekki hægt að skoða með neinum öðrum hætti en að stjórnin sé að axla ábyrgð á því að hún kunni að hafa brugðist í sínu hlutverki í aðdraganda bankahrunsins. Með afsögn sinni er stjórn FME jafnframt að gera það mögulegt að nýir aðilar komi að verki í því uppbyggingarstarfi sem framundan er. 


mbl.is Ingibjörg Sólrún: Afsögn Björgvins kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sammála

Ég er sammála hverju orði hjá Ragnheiði Ríkharðsdóttur þingmanni. Samfylkingin hefur stigið skref sem kalla á að Sjálfstæðisflokkurinn geri slíkt hið sama. Ef bankastjórn Seðlabankans sér ekki sjálf að hún á ekki annarra kosta völ en að segja af sér sjálfviljug þá verður að leysa hana frá störfum. Telji bankastjórnin þá brottvikningu ólögmæta þá er dómstólaleiðin fær fyrir bankastjórana til að láta á það reyna.
mbl.is Vonast eftir að Davíð verði látinn víkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband