Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Ofurmannlegt

Ég sá viðtalið við Gunnlaug í Kastljósinu á fimmtudag (hér). Það hlýtur að vera nánast ofurmannlegur agi sem beita þarf sig til að ná árangri af þessu tagi. Og sérlega ánægjulegt að nú skyldi þetta takast því í fyrra voru ytri aðstæður honum andsnúnar svo hann hætti. Innilegar hamingjuóskir til Gunnlaugs.
mbl.is Lauk ofurmaraþoninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvorugur góður?

Ég byrjaði að horfa á þessar kappræður. Og gafst svo upp. Mér fannst þeir báðir frekar stirðir og leiðinlegir - töluðu ekki hvor við annan, eins og stjórnandinn var þó að reyna að fá þá til að gera. Skoðanakannanir vestra benda til að það sé mat áhorfenda að Obama hafi haft betur - en sá fyrirvari er þó gerður að fleiri demókratar en repúblikanar horfðu á kappræðurnar (sjá hér). Mat áhorfenda er þó það að báðir frambjóðendurnir hafi gefið þá tilfinningu að þeir myndu ráða við forsetaembættið. En því er ekki að neita að aldursmunurinn var býsna áberandi á þeim - McCain virkaði ósköp gamall og lúinn. Obama virkaði talsvert sprækari.
mbl.is Efnahagsmálin efst á baugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhróður

Lögmenn mega, eins og ýmsar aðrar stéttir, una við það að gagnaðilar leggjast gegn þeim persónulega fyrir það eitt að vinna vinnuna sína. Ég sé á visir.is að kona ein, sem er gagnaðili í máli sem ég rek fyrir fv. eiginmann hennar, vandar mér ekki kveðjurnar. Svona skrif dæma sig auðvitað sjálf. Staðreyndin í málinu er sú að konan var dæmd til að greiða fv. eiginmanni sínum málskostnað, því hún tapaði máli gegn honum. Héraðsdómur taldi þar með eðlilegt að hún greiddi málskostnað, án tillits til félagslegrar stöðu hennar. Umbj. minn vill eðlilega innheimta þennan málskostnað og það geri ég fyrir hann, með þeim leiðum sem lög gera ráð fyrir. Fleira er ekki um þetta mál að segja.


Kallar á skýringar

Það kemur á óvart og vekur sérstaka athygli, í ljósi stöðu mála, að Seðlabanki Íslands skuli ekki vera með í þessum samningi. Fjölmiðlar hljóta að kalla eftir skýringum bankans á því og vekur raunar furðu að svo hafi ekki verið gert áður en þessi frétt var skrifuð.
mbl.is Seðlabanki Íslands ekki með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað

skyldu þeir hafa fengið þessir forsvarsmenn ef félagið hefði ekki orðið gjaldþrota?
mbl.is Stjórnendur Lehman fá bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju er verið að leigja?

Fróðlegt hefði verið að fá í fréttina hver var heildarbyggingarkostnaður byggingarinnar. Borgin er búin að greiða tæpan milljarð vegna innréttinga og húsgagna og greiðir svo hátt í hálfan milljarð á ári í leigu. Ég trúi ekki öðru en að byggingarkostnaður sé greiddur upp með slíkri leigu á örfáum árum. Hver er ávinningurinn fyrir okkur útsvarsgreiðendur í Reykjavík? Í fljótu bragði er hann ekki alveg augljós.
mbl.is Ársleiga í Borgartúni 414 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar eitthvað í frásögnina?

Reglur eru alveg skýrar. Ef barn lýtur eingöngu forsjá móðurinnar, eins og sagt er í fréttinni þá á einfaldlega ekki að vera hægt að flytja lögheimili barnsins, hvort sem er innanlands eða til útlanda nema með hennar samþykki og áritun á flutningspappíra. Miðað við þá framkvæmd sem ég þekki í þessum málum þá virðist sem einhverjar blaðsíður vanti í söguna. Nema embættismenn hjá Þjóðskrá hafi gert svona herfileg mistök. Fyrirfram á ég bágt með að trúa því en hafi það verið gert þá er Þjóðskrá skv. minni reynslu fljót að leiðrétta slíkt.
mbl.is Fluttur til Noregs án samþykkis móður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður fróðlegt

að sjá hvort þessi atkvæði skili sér öll þegar upp er staðið. Það mun tíðkast að lönd lofi fleiri en einum stuðningi í svona baráttu þannig að síst af öllu skyldum við treysta því að sætið sé í hendi, hvað sem stuðningsyfirlýsingum líður. Hef hins vegar efasemdir um skynsemi þess að leita eftir þessu kjöri.
mbl.is 140 þjóðir hafa lýst yfir stuðningi við framboð Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eina rétta í stöðunni

Það er ánægjulegt að ríkissáttasemjari skuli hafa tekið ákvörðun um að leggja fram miðlunartillögu. Vonandi tekst með henni að leysa þessa deilu með farsælum hætti.
mbl.is Verkfalli aflýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira um staðgöngumæðrun

Það má ekki drepa þessu máli á dreif. Ýmis nágrannalönd okkar hafa lögleitt staðgöngumæðrun og leyst mörg þau vandamál sem vísað er til í þessari frétt. Vissulega þarf umræðu, en vonandi verður markmið hennar að tryggja að staðgöngumæðrun verði lögfest hér. Kostirnir, að mínu mati, yfirvega þá annmarka sem á lögleiðingu kunna að vera. Eins og ég hef áður minnst á á þessum vettvangi þá höfum við tekið skref á þessu sviði sem kalla á að staðgöngumæðrun verði næsta skrefið. Flóknara er þetta ekki.
mbl.is Staðgöngumæðrun „má ekki verða atvinnuvegur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband