Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Athyglisverður dómur

Ég sé ekki betur en að þessi dómur sé í raun í samræmi við dómvenju sem hér hefur skapast varðandi ábyrgð á meiðandi ummælum. Það merkilega er að verið er að beita ákvæðum prentlaga með lögjöfnun. En ég sé ekki betur en að það sé fullkomlega eðlilegt. Ég held að flestum sem fylgjast með skrifum í bloggheimum ofbjóði oft orðfæri sem bloggarar nota. Engin ástæða er til annars en að gera þá sem blogga ábyrga fyrir ummælum sínum jafnt og hægt er að gera þá sem tjá sig í öðrum miðlum ábyrga. Í raun má merkilegt teljast að ekki skuli hafa reynt á þessa ábyrgð fyrr. Dóminn í heild má lesa hér.
mbl.is Dómi líklega áfrýjað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskiljanlegt

Kom í morgun aftur heim, sem er svosem ekki í frásögur færandi. Ég get hins vegar ekki orða bundist yfir því að um leið og heim er komið úr Bandaríkjaflugi þarf að fara í gegnum allsherjarleit hér á Keflavíkurflugvelli. Vatnisflöskunni sem við fengum í flugvélinni rétt fyrir lendingu, henni þurfti ég að henda. Hún mátti ekki fara inn í flugstöðina. Allur handfarangurinn var gegnumlýstur aftur.

Áður en ég fór inn í brottfararsalinn í Boston fór ég í gegnum sömu leitina, allur handfarangur gegnumlýstur, öllu vatni fleygt. Frá leitinni í Boston og að leitinni í Keflavík hafði ég og samferðamenn mínir ekkert annað gert en verið í brottfararsalnum í Boston og í Flugleiðavélinni á leiðinni heim.

Ég hef mikinn skilning á því að það þarf að tryggja öryggi flugfarþega og er sem flugfarþegi fegin því að það eru miklar öryggisráðstafanir á öllum flugvöllum. En þessi leit hér á Keflavíkurflugvelli á fólki sem er að koma beint úr flugvél, og síðan áfram heim til sín, er mér algerlega óskiljanleg. Er fljótlegra að leita á öllum heldur en að sortera þá út sem eru að halda áfram til Evrópu? Ég skil vel að þá þurfi að skoða því þeir eru strangt tiltekið að tékka sig inn í annað flug - alveg eins og ég þurfti að fara í gegnum nýja skoðun í Boston þótt ég hefði farið í gegnum allt það sama í Chicago. 

Gott væri að einhver rifjaði upp fyrir mér af hverju þetta skrýtna fyrirkomulag hér er nákvæmlega nauðsynlegt.


"He lied"

Ég er í Bandaríkjunum þessa dagana og fylgist auðvitað með öllu varðandi forkosningarnar. Aðaldagurinn er í dag - og margt mun skýrara í kvöld en það er þessa stundina.

Ég ræddi í gærkvöldi við nokkra Bandaríkjamenn um hver þeir teldu líkleg úrslit úr þessum forkosningum. Öll voru þau sammála um það að líklegra væri að Obama yrði frambjóðandi demókrata en Clinton en ekkert þorði þó að fullyrða að svo yrði - " I wouldn't bet money on it" eins og einn orðaði það. En öll voru þau líka sammála um það að ef Clinton verður frambjóðandi demókrata þá sé nánast víst að frambjóðandi repúblikana, hver sem hann verður, vinni forsetakosningarnar. Þau sögðu öll að andstaða hægri sinnaðra og frjálslyndra Bandaríkjamanna við Clinton hjónin væri slík að þeir myndu flykkjast á kjörstað til þess eins að styðja andstæðing hennar.

Og þegar ég spurði af hverju andstaðan við þau væri svona mikil - var aðalsvarið: "He lied" og var þá verið að vísa til þess að Bill Clinton hefði sagt ósatt í Lewinsky málinu. En eins og allir muna þá sagði Bill Clinton fyrir rétti: "I did not have sex with that woman" eða eitthvað í þá áttina. Upp komu síðan vangaveltur um það hvort hann hefði skrökvað eða ekki. Allt fór það eftir því hvernig hver og einn skilgreindi hvað er kynlíf og afhjúpaði að mínu mati betur en nokkuð annað ákveðinn tvískinnung Bandaríkjamanna á því sviði. Er það furða þó t.d. Frakkar hafi aldrei skilið um hvað Lewinsky málið snerist um.

En kvöldið verður spennandi - og ég er vondaufari fyrir hönd "míns" kandidats eftir umræðurnar. En við skulum spyrja að leikslokum. Og nýjustu fregnir herma að lhugsanlega muni það þeirra sem ekki vinnur verða varaforsetaefni þess sem vinnur. 


Umhugsunarefni

Það kemur útaf fyrir sig ekki á óvart að fv. hr. Ísland skuli fá miskabætur fyrir það hvernig staðið var að því að svipta hann titlinum. Ég er hins vegar mjög hugsi yfir því að honum skuli dæmd svo há fjárhæð því börn sem lenda í kynferðislegri misnotkun eru í mörgum tilvikum að fá litlu hærri bætur en 200.000 kr.  Hefði ég þó haldið að miski barnanna sé miklum mun meiri. Flest ef ekki öll börn sem verða fyrir kynferðislegri misnotkun fá varanleg ör á sálina og bíða þess í raun aldrei bætur. Svipting fegurðartitils veldur að mínu mati tæpast nokkru varanlegu andlegu tjóni.
mbl.is Fær bætur fyrir að missa fegurðartitil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýna viljann í verki

Gott hjá SA að vilja fjölga konum í stjórnunarstöðum. Samtökin byrja vonandi á því að tilnefna fleiri konur í þau sæti sem þau hafa yfir að ráða í stjórnum lífeyrissjóða. SA hefur hér kjörið tækifæri til að láta verkin tala.
mbl.is SA vilja fjölga konum í stjórnunarstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 389902

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband