Leita í fréttum mbl.is

Vangaveltur

Er það ekki hið besta mál að þetta sé skoðað. En í þessu samhengi verður ekki hjá því komist að horfa á það að FME gaf grænt ljós á þessa Icesave reikninga. Spurning hvort það að einhverju leyti fríi þá sem til stofnuðuð undan ábyrgð.  Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þessa máls.


mbl.is Ríkið í mál vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viggó Jörgensson

Já ég leyfi mér að telja að það vanti algerlega ólögmætið til að uppfylla skilyrði culpa reglunnar.

Svo kem ég ekki heldur auga á saknæmið varðandi stofnun reikninganna.   

Viggó Jörgensson, 21.8.2009 kl. 19:10

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það eina sem er áhugavert við þessa frétt er að Steingrímur Joð vill "tjá sig varlega" um málið, annað er poppulismi.

Hins vegar er gott að vita að hið lögfræðilega auga vaki yfir svona fréttum.

Ragnhildur Kolka, 21.8.2009 kl. 19:25

3 identicon

Þjófur sem gripinn er fyrir utan búð með fullan poka á bakinu - bendir ekki á eftirlitsbúnaðinn og kennir honum um...  Gerendurnir eiga að bera ábyrgðina þegar upp er staðið.  Ekki vanhæfir eftirlitsaðilar.

Hvað myndi dómari hér segja um þetta tiltekna mál varðandi eftirlit og ábyrgð FME ?  Mun hann fría hugsanlega "brotamenn" í ljósi þess að FME hafi gefið grænt ljós á tiltekna viðskipaferla (og þá meina ég alla þætti viðkomandi viðskiptaferla...). Hver ætti þá að bera skaðann ?  Almenningur, ég og þú ?

Er FME eins og mamma  og gerendurnir börnin ?

Það verður fróðlegt að sjá á hvaða plani hlutirnir eru hér - þegar dómskerfið hefur sagt síðasta orðið. Mjög spennandi.

Konni (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 20:19

4 identicon

Mætti lýkja þessu ferli við bíl sem stenst skoðun; en er það ekki bílstjórinn sem ber alltaf ábyrgð á bílnum & og það er margt sem getur komið upp á eða breyst í sambandi við bílinn EFTIR að hann er búinn að fara í gegnum skoðun.

Mr. Jón Scout Commander (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 21:59

5 identicon

Jón skáti:  Þú meinar þá þætti ferilsins eftir skoðun og blessun Fjármálaeftirlitsins. Jú ég er sammála þér.

Ég allavega tel að það verði ákaflega erfitt fyrir hugsanlega brotamenn (þ.e. af lögbrot koma í ljós) að leggja fram "heilbrigðisvottorð" frá eftirlitsaðila (FME) sem þekur alla þætti.

En dómstólar verða að hafa síðasta orðið.

Konni (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 23:49

6 identicon

Dómstólar já...!

Áttu við dómstólana með dómurunum sem teknir voru framfyrir hæfari umsækjendur starfans, þvert gegn nefndarálitum og í gegnum pólitíska spillingu og hrókeringar ráðherra?

Það verður afar fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þeirri umfjöllun.

Kv: G.Þ.

Guðmundur Þórarinsson (IP-tala skráð) 22.8.2009 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 391637

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband