Leita í fréttum mbl.is

Skattpínd þjóð

Ríkisstjórnin lofaði skjaldborg um heimilin og fjölskyldurnar. Sú skjaldborg var aldrei reist. Fjölskyldurnar í landinu hafa fyrir löngu gefist upp á biðinni eftir henni. 

Jólaandi ríkisstjórnarinnar birtist þjóðinni í óbilandi trú á að auknir skattar leysi allan vanda. Þær verða sífellt ófrýnilegar jólagjafirnar sem ríkisstjórnin ætlar að gefa þjóðinni. Fyrir nýjum skattaálögum standa fjölskyldurnar í landinu berskjaldaðar og varnarlausar.

Það gæti varla orðið verra fyrir þjóðina að fara í jólaköttinn ...


mbl.is Heimsins hæsti skattur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Það er margt búið að gera þó að ekki takist að barga öllum eins og til dæmis þeim sem byrjuðu að byggja eða kaupa annað húsnæði áður en það  fyrra var selt, sá hópur er mjög hávær og vissulega mína samúð. Á að fella niður skuldir þeirra. Hver á að borga þær?  Finnst þér heiðarlegt að segja að ekkert hafi verið gert?

Þórdís Bára Hannesdóttir, 19.12.2009 kl. 12:09

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Sæl Dögg mikið er ég sammála þér með að fyrir okkur fólkið er ekkert gott búið að gera, og þvílík jólagjöf...það er spurning hvort við getum ekki skilað henni pennt til baka, maður skilur ekki á hverju Ríkistjórnin ætlast til að fólkið lifi...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 19.12.2009 kl. 17:15

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Nú eigum við að færa áramót fjárhagsársins til mánaðarmótanna mars/apríl líkt og er í Bretlandi. Það er fáránlegt að vera að reyna að keyra fjárlög í gegn á þessum árstíma og ekki beint fjöldskylduvænt fyrir þingmenn, starfsmenn og starfsmenn Alþingis og ráðuneyta.

Með þessu móti myndum við nú í fyrsta áfanga auka tekjur ríkissjóðs að yfirstandandi fjárhagsári um fjórðung, þ.e. 3. mánaða tekjur.....! Það munar um minna til að fylla upp í fjárlagagatið. Þetta myndi virka eins og vítamínssprauta, líkt og þegar við fengum skattlaust ár forðum við breytinguna í staðgreiðsluskatta... Eða var það ekki þannig...?

Ómar Bjarki Smárason, 21.12.2009 kl. 01:30

4 Smámynd: Steinarr Kr.

Þjóðin heyrði ekki rétt í Jóhönnu.  Þegar allir héldu að hún væri að tala um skjaldborg var hún að tala um að ætla að læsa okkur inni í Gjaldborg.

Steinarr Kr. , 21.12.2009 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband