Leita í fréttum mbl.is

Trúðu þeir að þetta myndi reddast?

Fleiri og fleiri vísbendingar hafa komið fram um það að yfirvöldum og eftirlitsstofnunum hafi verið ljóst strax í byrjun árs 2008 að bankarnir hér, einn eða fleiri, væru komnir í eða stefndu í þá stöðu að geta hrunið. Af fréttinni má ráða að einhvers konar viðbragðsáætlun var um það hvernig bregðast skyldi við hruni.

Hin brennandi spurning er: Til hvaða aðgerða var gripið af hálfu þessara aðila til að reyna að afstýra hruni? Bjuggu yfirvöld virkilega yfir slíkri vitneskju, gerðu ekkert til að afstýra því sem gerst gat heldur biðu bara og treystu því að þetta myndi reddast, af sjálfu sér?


mbl.is Áætlun ef bankar færu í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Já, og sjálfur ráðherra bankamála, Samspilingarfélaginn Björgvin sem sagðist ekki hafa haft neina vitneskju, átti ráðuneytisstjóra sem sat þessa fundi. Það væri með ólíkindum hafi sá stjóri ekki kynnt ráðherranum slíka skýrslu.

Segi og skrifa enn og aftur að Sjálfstæðisflokkurinn háði einhverja bitlausustu kosningabaráttu sem háð hefur verið í manna minnum, jafnvel frá fyrstu tíð. Létu Samspillinguna komast upp með að kenna Sjálfstæðismönnum um alla hluti, m.a. að bankarnir hafi hrunið á okkar vakt, ekki vakt bankamálaráðherrans og fólk gleypti við þessu og frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins voru í því að reyna að réttlæta sjálfa sig og taka undir þennan söng að hluta. Sýndu aldrei snarpar klær þó af nægu væri að taka.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.5.2009 kl. 08:49

2 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Sammála þér "predikari"  sjaldan áður séð Sjálfstæðisflokkinn jafn bitlausan í kosningabaráttu og núna.   Mér finnst það þó ekki skrýitið með fugl eins og Vilhjálm Egilsson innanborðs  !!!

Sigurður Sigurðsson, 14.5.2009 kl. 08:54

3 Smámynd: Einar Vignir Sigurðsson

Pretikari!

Það er allt í lagi að kalla samfylkinguna samspillinguna en til að gæta sannmælis þá ættirðu að kalla sjálfstæðisflokkinn sjálftökuflokkinn því að það er sama helv. spillingarliðið þar.

Einar Vignir Sigurðsson, 14.5.2009 kl. 09:14

4 Smámynd: Óttar Felix Hauksson

Þú hefur endaskipti á þessu öllu Dögg. Hin brennandi spurning er hvað gerðu stjórnendur bankana? Það er fram komið að Seðlabankinn kynnir þessa skýrslu fyrir öllum bærum yfirvöldum. Þess hefur einnig verið getið að á grundvelli EES samningsins var búið að ryðja flestum hindrunum  úr vegi fyrir frjálsum fjármagnsflutningum bankanna. Einnig hefur verið bent á að þrátt fyrir vitneskju Seðlabankans þá hafi bankann skort valdsheimildir til að grípa beint inn í óráðssíu óreiðumannann. Það er fram komið að í meira en heit ár hafi bankarnir skellt skollaeyrum við varnarorðum Seðlabanka og haldið áfram miljarða fjármagnsflutningum fram á síðuðstu daga fyrir hrun. Sem kunnugt er fara flestir fjármagnsflutniungar fram með rafrænum hætti og í þessu "frelsi" er skaðinn oftast skeður þegar hann við eftirlit eða endurskoðun kemur í ljós. Það eru því stjórnendur bankanna sem fullráða einstaklingar og í forsvari fyrir lögráða fyrirtæki sem eiga að axla ábyrgð gerða sinna. Hinir grunnhyggnu geta haldið áfram að syngja hjáróma "þetta er allt Davíð að kenna" en falskt hljómar sá söngur. Ekki álasaði Barrack Obama  Georg Bush fyrirð fall Lehman brothers bankans, né heldur lánsfjárkreppuna sem fylgdi í kjölfarið. Ekki fór hann út íí lágkúruna "þetta gerst á þinni vakt" í kosningarbaráttunni. Ekki setti hann Ben Bernanke þáverandi aðalseðlabankastjóri Bandaríkjanna til hliðar.  Hann er enn á sínum stað. Lágkúran er aðalsmerki lítilsigldra. 

Óttar Felix Hauksson, 14.5.2009 kl. 10:05

5 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Óttar Felix. Hlutverk eftirlitsstofnana er að grípa inn í þegar vá er fyrir dyrum. Hver voru viðbrögð eftirlitsstofnana? Engin. En að sjálfsögðu er meginábyrgðin á því hvernig fór hjá bönkunum algert ábyrgðarleysi eigenda og stjórnenda. En þeir virðast hafa fengið að vera í því ábyrgðarleysi áreitnislaust af hálfu eftirlitsstofnananna.

Dögg Pálsdóttir, 14.5.2009 kl. 10:48

6 Smámynd: Óttar Felix Hauksson

"En að sjálfsögðu er meginábyrgðin á því hvernig fór hjá bönkunum algert ábyrgðarleysi eigenda og stjórnenda". Það er mergur málsins Dögg, ég hef ekki orðið var við að sú áhersla hafi verið mikið  frammi á blogginu þínu. En nú eru ýmis mál sem tengjast þessu bankahruni  í rannsóknarfarvegi og við skulum sjá hvort málatilbúnaður verði með þeim hætti að hægt verði að fjalla efnislega um og að dómar nái fram að ganga. Það verður að segjast að í þeim efnum hefur potturinn verið víða brotinn að undanförnu, jafnvel svo mjög að almenningi hefur þótt nóg um. Vegna lélegs málatilbúnaðar og formgalla hefur alvarlegum álitamálum verið vísað frá dómi og þar af leiðanfdi ekki hlotið efnislega umfjöllun. Illa er komið fyrir séttinni þegar svo er háttað.

Óttar Felix Hauksson, 14.5.2009 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband