Leita í fréttum mbl.is

Smámunir

Það er sama hvernig þessar tölur eru skoðaðar. Þessar fjárhæðir eru smámunir í samanburði við milljarðana sem fjármálaráðherra er þegar búinn að gefa hluthöfum tveggja fjárfestingabanka með láni á gjafakjörum.

Það vefst ekki fyrir fjármálaráðherra og ríkisstjórn sem kennir sig við jöfnuð og réttlæti að gefa peningamönnum og -fyrirtækjum sem eiga tvo fjárfestingabanka milljarða á silfurfati. Á sama tíma ræður þessi sama ríkisstjórn jöfnuðar og réttlætis ekki við að slá þeirri skjaldborg sem hún lofaði um heimilin og fjölskyldurnar í landinu. 


mbl.is Ójöfn dreifing skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fjármálaráðherra var ekki að gefa SC og VBS milljarða, þetta voru lán sem voru endurskipulögð vegna þess að veðin þóttu ekki lengur nægileg. Það er nú eitthvað sem þú ættir að þekkja.

AÞ (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 07:59

2 identicon

Döpur rök hjá þér AP. Þetta snýst um vaxtakjörin sem eru fáranleg og innifela milljarðana sem Dögg nefnir.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 08:08

3 identicon

Lánakjör eiga að endurspegla lánshæfi. Fjármálafyrirtæki á Íslandi hafa slæmt lánshæfi á þessum tímum.

SC og VBS eru ekki fyrirtæki sem svo víst er að séu það vel stöndug að meiri líkur en ekki séu á að þau lifi næsta árið af.

Þetta lán er ekkert nema björgunaraðgerð, frekar en lán. Eitthvað sem fjármálafyrirtæki á Íslandi sem hafa nú þegar fallið hafa fengið!

Elvar (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 08:21

4 identicon

Er ekki verið að færa Saga Capital stórar upphæðir á silfurfati og endurblása í "loftbóluverðmætin" sem einn af eigendunum fékk á sínum tíma með "loftbólubraski sem yfirmaður" hjá KB-banka sáluga og þjóðin borgar aftur.  Hvað með norska fjárfestinn sem fékk milljarða í morgun ?   Vinnubrögðin hjá Steingrími og Jóhönnu minna mig dálítið á hrunið í Rússlandi hér áður fyrr þegar sumir fengu "verðmæti á silfurfati"

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 15:36

5 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Ég skil vel að AÞ (AP?) þori ekki að koma með sína athugasemd undir fullu nafni. Það er verið að gefa þessum tveimur fyrirtækjum milljarða í afslátt af vaxtagreiðslum. Flóknara er það ekki.

Dögg Pálsdóttir, 31.3.2009 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband