Leita í fréttum mbl.is

Hvar eru

boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings fyrirtækjum og fjölskyldum? Fyrri ríkisstjórn stóð sig ekki nægilega vel í þessum efnum. Nýja ríkisstjórnin þóttist hafa lausnirnar, en þær láta standa á sér.

Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgar stórlega milli ára. Þessi þróun var fyrirséð og staðfestir hvernig hávaxtastefnan m.a. er að setja fyrirtækin á kné. Því fylgir aukið atvinnuleysi og er vart á það bætandi eins og staðan er nú.

Vandi heimila er óleystur. Í annarri frétt hér á mbl.is í dag er skýrt frá því að fjölskylda sem keypti íbúð á 100% láni fyrir nokkrum misserum er nú með í höndum eign sem stendur ekki lengur undir veðinu. Þeir sem keypt hafa eign fyrir nokkrum misserum og áttu einhvern höfuðstól í henni eru komnir í þá stöðu að höfuðstólinn hefur verðbólgan brennt upp. Eftir stendur eign sem varla stendur lengur undir áhvílandi íbúðaláni. Meðan fjölskyldan getur borgað hinar mánaðarlegu afborganir af láninu skapast engin vandamál. En um leið og greiðslugetuna þrýtur, t.d. vegna atvinnuleysis, þá stefnir þessi fjölskylda í þrot og heimilismissi.

Hvað á að tala lengi um að koma fjölskyldum og fyrirtækjum til hjálpar? Er ekki búið að tala nóg og komið að því að gera það sem þarf, sem er fyrst og fremst lækkun vaxta og lækkun höfuðstóls íbúðarlána með því t.d. setja hann til stöðu miðað við einhverja tímasetningu s.s. 1. júlí 2007?

Því sem hér hefur gerst hefur verið líkt við efnahagslegar hamfarir. Bregðast þarf við þeim í samræmi við það. Það verður ekki gert með einhverjum gömlum leiðum. Ný og óþekkt vandamál kalla á nýjar og róttækar lausnir, eins og þá sem að framan er rakin. Spurningin er: Þora stjórnvöld að grípa til lausna af þessu tagi.


mbl.is 70 fyrirtæki gjaldþrota í janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Sæl Dögg.

Væri ekki nær að vinna saman í þinginu að þeim lausnum, sem eru brýnilegastar fyrir almenning. Þú persónulega veist ekkert um kreppu,þú hefur nóg fyrir þig og þína.

Hugsar þú aldrei að það væri kannski þarfara verk að gera eitthvað í þeim málum en að vera alltaf í sandkassaleik.

Kveðja. 

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 13:16

2 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Sæll Þórarinn. Ekki kannast ég við að vera í sandkassaleik. Ég veit ekki betur en að færslan byrji á ábendingu um að fyrri ríkisstjórn hafi brugðist. Og til upplýsinga. Hvað veist þú um það hvað ég hef fyrir mig og mína? Ég veit nákvæmlega hvað kreppa er og frábið mig því að mér séu aldar næktir í skrifum frá þér eða öðrum.

Dögg Pálsdóttir, 24.2.2009 kl. 16:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 391657

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband