Leita í fréttum mbl.is

Viltu vakna við vinstri stjórn 13. maí?

Skoðanakönnun dagsins (http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1268788) sýnir að þriggja flokka vinstri stjórn Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknar gæti orðið sú stjórn sem landsmenn vakna upp við 13. maí. Sumir myndu kalla það martröð að vakna upp við slíka stjórn.

Þeir sem vilja ekki vinstri stjórn kjósa Sjálfstæðisflokkinn á kjördag. Flóknara er þetta ekki.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alltaf jafn málefnaleg umræðan hjá ykkur Sjálfstæðimönnunum. Annars held ég að fólk vakni upp við eitthvað annað og verra en vinstristjórn á sunnudaginn.

Egill Harðar (IP-tala skráð) 10.5.2007 kl. 14:26

2 Smámynd: Þorsteinn Egilson

Já, gjarna. Þakka þér fyrir að spyrja. -Að öðru leyti óska ég þér góðs gengis.

Þorsteinn Egilson, 10.5.2007 kl. 14:53

3 Smámynd: Púkinn

Af tvennu illu.... já eiginlega frekar. 

Púkinn, 10.5.2007 kl. 16:45

4 identicon

Það er gaman sjá að Morgunblaðið skuli leggja sig fram um að setja eins málefnaleg innlegg og þetta um kosningarnar, á forsíðu sína.

En þú talar um vinstri stjórn, það finnst mér broslegt.

Er það stjórn Sjálfstæðisflokksins sem hefur haldið íslenskum landbúnaði í heljargreipum með einum mestu ríkisstyrkjum innan OECD? Er það ekki stjórn Sjálfstæðisflokksins sem hefur þanið út ríkisbúskapinn? Var það ekki stjórn Sjálfstæðisflokksins sem vildi hefta eignarétt manna á fjölmiðlum en hvarf frá því með skottið á milli lappanna? Er það ekki stjórn Sjálfstæðisflokksins sem fylgir og boðar þá stefnu að leysa eigi byggðavanda með stalínískum verksmiðjulausnum og ríkisreknum virkjunum?

Ég vil vakna við betri stjórn þann 13. maí, því mun ég láta D reitinn standa auðann á kjördag.

Bjarni Þór Sigurbjörnsson (IP-tala skráð) 10.5.2007 kl. 17:19

5 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Já að sjálfsögðu. Þótt að það sé nema til að Lýðræðið sé virkt... Einræðisstjórn (D) og (F) hérna í Lýðveldinu er mál til komið að heyra sögunni til...

Guðrún Magnea Helgadóttir, 10.5.2007 kl. 17:57

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég hef beðið eftir þessu í áraraðir. Þetta er boð sem enginn getur hafnað sem ann frelsi og lýðræði. Að geta átt von á því að frelsi einstaklingsins verði sett hærra en frelsi fjármagnsins. Ertu að grínast?

Hugheilar þakkir, þú ert yndisleg!

Árni Gunnarsson, 10.5.2007 kl. 19:11

7 Smámynd: Sigríður Laufey Einarsdóttir

Beið einu sinni með himinblá augu eftir vinstri stjórn og hún kom. Versta stjórn sem ég man eftir, náði ekki tökum á neinum málum sem heitið gat.

Nei, takk ekki vinstri stjórn þá vil ég heldur kjósa það sem ég ætlaði ekki að kjósa.

Með kveðju.

Sigríður Laufey Einarsdóttir, 10.5.2007 kl. 20:28

8 Smámynd: Grímur Kjartansson

Með Guðfríði Lilju sem viðskipta og iðnaðarráðherra og Ögmund sem fjármálaráðherra þá er framtíðin björt hjá komandi kynslóðum á Íslandi.

Grímur Kjartansson, 10.5.2007 kl. 20:37

9 Smámynd: Jón Magnússon

Spurningin er hvort íslenska þjóðin vaknar ekki og áttar sig á því fyrir hvað Sjálfstæðisflokkurinn stendur sbr það sem Bjarni Þór Sigurbjörnsson bendir svo réttilega á hér að ofan. Sjálfstæðisflokkurinn er þreyttur kerfisflokkur sem hefur gleymt frjálslyndum áherslum Það á að refsa honum. Við skulum vona að við fáum "Frjálslynda umbótastjórn" upp úr kjörkössunum aðfaranótt sunnudagins kemur.

Að öðru leyti ágæta vinkona gangi þér vel.

Jón Magnússon, 10.5.2007 kl. 21:19

10 Smámynd: Sigurður Á. Friðþjófsson

Já.

Sigurður Á. Friðþjófsson, 10.5.2007 kl. 21:57

11 Smámynd: haraldurhar

Ja ég vil vakna á sunnudaginn með nýja og breytta landstjórn.

En Dögg kona með þína reynslu  og þroska skifar ekki svona eins og ungur heimdellingur.

haraldurhar, 11.5.2007 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband