Leita í fréttum mbl.is

63:0?

Ég er að horfa á kvöldfréttir RÚV. Skrítið hvað forsætisráðherra var afdráttarlaus í að segja að stjórnin þyrfti ekki á stjórnarandstöðunni að halda vegna Icesave. Þau ummæli komu þvert á ummæli  heilbrigðisráðherra sem sagðist helst vilja sjá Icesave samþykkt með 63:0. Að vísu bætti forsætisráðherra við að auðvitað væri betra að sem breiðust samstaða næðist á þinginu.

Ég held að það sé rétt hjá heilbrigðisráðherra. Gagnvart umheiminum er allra best ef Alþingi ber gæfu til að ná slíkri samstöðu um fyrirvara við Icesave ríkisábyrgðina að allir þingmenn, hvar í flokki sem þeir standa, greiði atkvæði með málinu, breyttu með þeim hætti sem samstaða næst um.


mbl.is Icesave líklega úr nefnd fyrir vikulok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Sammála :)

Ásgeir Rúnar Helgason, 11.8.2009 kl. 19:58

2 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Ég held að mörgum finnist ábyrgðaleysi Bjarna Ben og félaga svo botnlaust að ekki taki að tjónka við þeim.

Munum að Bjarni sjálfur var t.d.  aðalflutningsmaður þingsályktunartillögunnar í desember sem fól ríkisstjórninni að ljúka samningum við Brerta og Hollendinga á þeim grunni sem þá lá fyrir. Bjarni rökstuddi þá tillögu þannig að ekki væri annarra kosta völ. Nú hefur lánstími verið lengdur úr 10 árum í 15 ár og afborgunarlaust í 7 ár, það eru 5,55% vexti í stað 6,7% og greiða má lánið upp hvenær sem er eða að hluta ef Íslendingar fá betri kjör annarsstaðar, - og núna er Bjarni og allt hans lið á móti.

Ekki myndi ég reyna að ræða við hann þar sem svo augljóslega allt annað en efni málsins ræður afstöðu hans og Sjálfstæðisflokksins. Það er augljóslega það eitt að komast í ríkisstjórn sem vakir fyrir þeim og ræður þeirra för, fullkomlega skeytingalusir um þjóðarhag og rétt og rangt. - Sjálfstæisflokkur verður að bera sjálfur ábyrgð á afstöðu sinni einn og óstuddur.

Helgi Jóhann Hauksson, 12.8.2009 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 391615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband