Leita í fréttum mbl.is

Hún er seig

Forsætisráðherra er ótrúlegur stjórnmálamaður - hún hefur mörg líf og hefur þann einstaka hæfilega að lenda alltaf standandi. Hún er að vonum ánægð í dag og má vera það. Lengi stóð það tæpt að tillagan yrði samþykkt. Án stuðnings nokkurra framsóknarþingmanna og eins sjálfstæðismanns hefði þetta ekki náðst. Það fór því eins og áður var búið að spá. Stjórnarandstaðan veitti EB tillögu ríkisstjórnarinnar brautargengi. Á það treysti forsætisráðherra. Það má segja að nægilega margir stjórnarandstæðingar hafi ekki brugðist því trausti forsætisráðherra.

Aðildarviðræður við EB er vegferð sem við verðum að leggja í. Hvort okkur hugnist það sem okkur mun bjóðast geta eingöngu aðildarviðræður leitt í ljós. Þess vegna fagna ég niðurstöðu Alþingis í málinu.


mbl.is Missti aldrei trúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Já, til hamingju Dögg!

Guðbjörn Guðbjörnsson, 16.7.2009 kl. 16:58

2 identicon

Ég legg til að þú og Guðbjörn borgið fyrir þessar viðræður, sem og aðrir sambandssinnar, sem munu kosta okkur miljarða.

Það ættu allir læsir lögfræðingar að geta séð það að við fáum engar undanþágur og aðildasamningar eru eins að upplagi hjá öllum aðildarríkjunum.

Landið (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 17:35

3 identicon

Jóhanna er sauðheimsk að mínu mati.

Styð reyndar ekki nokkurn kjaft í þessari stjórn, hugsið ykkur að forsætisráðherrann okkar sem á að vera inní okkar helstu málum eins og Icesave, alþjóðagjaldeyrismál osfrv, kann ekki einu sinni ensku og þarf túlk til að útskýra nokkur orð fyrir erlenda fjölmiðla.

Manni er skapi næst að flytja út og leyfa þeim sem kusu þetta hyski að borga brúsann. Þetta lið sem kosið var ætlar að launa ykkur atkvæðið með því að komast inn í ESB hvað sem það kostar. Borgum Icesave til að halda bretum góðum og látum almenning blæða fyrir aðildarviðræður sem skila engu.

Skammarlegur fjandi, en þetta kaus fólkið í landinu og sýpur svo seyðið af.

Vilmundur Árnason (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 17:58

4 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

En hvar á að skera niður þessa 2 - 3 milljarða sem þetta ferli kemur til með að kosta? Kannski eiga eldri borgarar og öryrkjar að taka þá skerðingu á sig....!

Ómar Bjarki Smárason, 16.7.2009 kl. 21:26

5 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Eitt fyrsta verk okkar vegna umsóknarinnar er úttekt á laga- og reglusafni okkar með mörg þúsund atriða tékklista frá ESB þar sem svara þarf þúsundum spurninga. - Í raun má líkja því við þegar flugvélar fara í reglulega skoðun - ýmislegt gagnlegt getur komið í ljós. - Hver veit fyrirfram hvaða gagn er af slíkri skoðun en reynslan segir þó að af slíku verki er mikið gagn og oft óvænt.

Einn stærsti kostnaðarliðurinn er þýðing gagna, einnig það verður aldrei mælt í krónum og aurum hvaða gagn er af, en þýðingarnar standa eftir aðgengilegar á gagnaveitum vefsins hvort sem þýtt er á íslensku eða af íslensku og skila örugglega sínu. 

Fyrir utan góðan aðildarsamning sem vonandi tekst að landa er verulegur, en oft illa mælanlegur, þjóðhagslegur arður af því verki sem þarna verður unnið.  Þessi rýni okkar í okkar mál sem og í lög og reglur ESB skilar sér líka með margvíslegum hætti.

Helgi Jóhann Hauksson, 17.7.2009 kl. 01:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 391624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband