Leita í fréttum mbl.is

Sofandi ríkisstjórn

Aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar verður æ háværara. Nóg voru þær þó hástemmdar yfirlýsingarnar 1. febrúar sl. Nú áttu hlutirnir að fara að gerast. En annað er komið á daginn. Hægagangurinn hefur, ef eitthvað, aukist. Af fréttinni má ráða að stjórnvöld veigra sér við að taka stjórn á verkum þar sem margir koma að, með þeim afleiðingum að ekkert gerist. Aðkeyptir erlendir ráðgjafar eins og Mats Josefsson eru greinilega orðnir svo óánægðir með gang mála að þeir hóta afsögn. Þarf frekari vitnanna við? Á meðan gerist ekkert, vandi fjölskyldna og fyrirtækja eykst. En ríkisstjórninni virðist alveg sama.


mbl.is Tafir á uppskiptingu milli nýju og gömlu valda titringi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Heiðdal

Þessi vinur ykkar í Sjálfstæðisflokknum hefur ekkert með hag venjulegs fólks að gera nema síður sé.  Fyndið að þú skulir samt stilla málinu upp með þessum hætti.  Sjálfstæðisflokkurinn setti þjóðina á hausinn sem hefur m.a. þær afleiðingar að sjálfsmorðum og glæpum fjölgar.  Það er það sem þú hefur skilið eftir þig og vinir þínir.  Þú hefur mannslíf á samviskunni og glæpi.  Samt þykist ég vita að þú sofir vel á nóttinni eins og aðrir góðir Sjálfstæðismenn og konur.  Ykkur þykir nefnilega svolítið vænt um ykkar störf í "þágu" þjóðarinnar.   

Björn Heiðdal, 26.5.2009 kl. 09:01

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Kanski er það svo að enginn, hvar í flokki sem hann er, ræður við þessar hamfarir. Enginn hefur þekkingu. Þetta er eins og að láta 10 ára barn framkvæma uppskurð.

Finnur Bárðarson, 26.5.2009 kl. 15:14

3 identicon

Segi það sama og Björn, furðulegt að Sjálfstæðisfólk sé að gagnrýna þá sem eru að reyna að lagfæra afleiðingar gjörða ykkar! Þetta er svipað og ef ég hefði sprengt hús og stæði svo full vandlætingar við rústirnar og gagnrýndi þá sem eru að byggja það upp aftur fyrir seinagang ! Ekki vantar hrokann í ykkur ! Vona samt að þingmenn flokksins bretti nú upp ermar og bjóði fram hjálp sína við uppbyggingu þjóðfélagsins en sleppi því að gagnrýna allt sem reynt er að gera. Hef samt littla trú á því--því miður.

Ína (IP-tala skráð) 26.5.2009 kl. 17:29

4 identicon

Sæl Dögg

Já það er sannarlega rétt fyrirsögnin hjá þér í dag.. Sofandi ríkisstjórn.  En það versta fyrir mig og mína er að við erum búin að hafa sofandi ríkisstjórn svo árum skiptir.  Afleiðingarnar = þjóðargjaldþrot (þótt ekki megi segja það upphátt)

Ásta B (IP-tala skráð) 26.5.2009 kl. 18:00

5 identicon

Að kenna Sjálfstæðisflokknum um hrunið er eins og að kenna lögregluþjóni um innbrot sem var framið á hans vakt. Fáránlegt.

Það er ekki hægt að horfa framhjá því að aðeins einn flokkur hefur þekkinguna og hæfnina til að byggja upp Ísland aftur. Og aðeins einn flokkur hefur raunsæ og skýr stefnumál um hvernig eigi að koma mér og þér til bjargar.

Við getum ekki litið til hliðar og látið eins og fjölmennur flokkur fólks úr öllum stéttum sé einhver vondukall sem þurfi að gjalda fyrir að ráðast á konungsríkið. Sjálfstæðisflokkurinn átti þátt í uppbyggingunni og á sama tíma þátt í að gera Ísland að einu besta landi heims til að búa í.

Það er alveg rétt að án uppbyggingarinnar hefði ekki orðið hrun eins og þetta, en við verðum líka að spyrja okkur hvernig í ósköpunum hefði verið hægt að byggja almannatrygginga-, heilbrigðis- og skólakerfi eins og hérna án uppbyggingarinnar. Hvað hefur fólk á móti því að flokkurinn sem áður hefur dregið Ísland úr svaðinu geri það aftur?
Og hvernig getur fólk leyft sér að hafa þvílíka tröllatrú á vinstriflokkunum miðað við sögu þeirra hérlendis til þessa?

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (IP-tala skráð) 26.5.2009 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband