Leita í fréttum mbl.is

Kosningaeftirlit

Ég hygg að mörgum hafi brugðið í brún fyrir stuttu þegar í ljós kom að ÖSE hefði ákveðið að senda hingað kosningaeftirlitsmenn. Nú eru þessir ágætu eftirlitsmenn komnir og teknir til starfa. Og það dugir ekki færri en 10. Það verður fróðlegt að sjá skýrslu þessara eftirlitsmanna. Einhvern veginn hélt maður að aðstæður hér á landi væru ekki með þeim hætti að þær kölluðu á sérstakt kosningaeftirlit.
mbl.is Kosningaeftirlitsmenn ÖSE hafa tekið til starfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Konráð Ragnarsson

Það hefur ætíð farið í taugarnar á Sjálfstæðismönnum allt eftirlit svo ég skil þig vel,enda lítið hægt að fela ef einhver er alltaf að hafa eftirlit með manni!

Konráð Ragnarsson, 15.4.2009 kl. 20:53

2 identicon

Það lýsir mikilli einfeldni og sjálfumgleði að halda að allt sé í stakasta lagi hér hjá okkur!

Haraldur Aðalbjörn Haraldsson (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 08:47

3 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Vonandi lesa þeir ekki Mogga-bloggið, sérstaklega ekki andsvörin  Ég veit þeir myndu þræta fyrir að vera af sömu dýrategund

Flosi Kristjánsson, 16.4.2009 kl. 10:05

4 Smámynd: Ólafur Tryggvason Þorsteinsson

Tókstu eftir því að Ástþór þakkar sér þetta og segist hafa náð að fá þá hingað til landsins til að fylgjast með að ekki sé á honum brotið.

Ólafur Tryggvason Þorsteinsson, 16.4.2009 kl. 10:05

5 identicon

Dögg, er þetta ekki fullmkil einfeldni í ljósi þinnar stöðu sem lögmanns og alþingismanns að halda að kosningaeftirlit af hendi ÖSE sé tilkomið vegna þeirrar stöðu sem Ísland er komið í? ÖSE hefur verið með slíkt kosningaeftirlit í mörgum lýðræðisríkjum vestur Evrópu og ekki þótt tiltökumál í viðkomandi löndum. Þið alþingismenn ættuð aðeins að slaka á hrokanum og fullvissu um eigið ágæti, þið eruð öll jafn sek um þá stöðu sem hér er komin hvar í flokki sem þið standið. Þið stóðuð jú öll saman vaktina og ykkur bar skylda til að hafa eftirlit með þeirri löggjöf sem bauð upp á slíkan harmleik sem þið hafið boðið þjóðinni upp á. Sá skrípaleikur sem þið Sjálfstæðismenn viðhafið nú á Alþingi og gerir það eitt að grafa undan fylgi flokksins er til háborinnar skammar, eins og þjóðin hefur fylgst með í beinni útsendingu frá þingstörfum. Nú leikið þið þann leik að vera með kosningaslag í pontu og ræðið kosningaloforð mótaðila í stað þess að ræða það sem þjóðin þarfnast mest og nauðsyn ber til að taka á. Við frábiðjum okkur þetta væl ykkar að komast í kosningaundirbúning og því þurfi að slíta Alþingi. það er sjálfsagt að Alþingi starfi fram að kosningum eins og hver annar vinnustaður því að sjálfsögðu eiga alþingismenn að sinna sínu starfi og sinna framboðum sínum í eigin tíma fyrir UTAN VINNUTÍMA en ekki í vinnutíma á kostnað skattgreiðenda. Það er fjári leiðinlegt að standa frammi fyrir þeirri ákvörðun sem flokksbundinn sjálfstæðismaður að geta ekki kosið eigin flokk - og ég er ekki sá eini.

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 16:01

6 Smámynd: Sigurður Ingi Jónsson

Ég tel fulla ástæðu til að fylgjast með framgangi kosninga hér á landi. Máli mínu til stuðnings bendi ég fólki eindregið á að lesa pistil sem ég tók saman um þetta efni, en Lögmannsstofan LEX hefur leikið aðalhlutverk bæði við að manna framboðslista Sjálfstæðisflokksins og við að manna kjörstjórn í sama kjördæmi. Sjá eftirfarandi pistil frá því í febrúar:

Endurskoða þarf framkvæmd alþingiskosninga fyrir 25. apríl 2009

Sigurður Ingi Jónsson, 17.4.2009 kl. 11:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 391625

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband