Leita í fréttum mbl.is

Góður punktur

Tek undir með stjórnmálafræðingnum að það vekur undrun að ríkisstjórn sem ætlar að sitja í örfáa mánuði skuli þurfa allan þennan tíma til að semja aðgerðaráætlun, sem virðist nýyrðið yfir stjórnarsáttmála. Þetta vekur grunsemdir um að í raun sé verið að semja til lengri tíma, þ.e. um framhaldslíf þessarar ríkisstjórnar eftir kosningar, ásamt þá Framsóknarflokknum með formlegum hætti. Það sem styður þá tilgátu er að utankomandi einstaklingar eru valdir í tvö ráðherraembætti. Þar virðist vera um að ræða ráðherraembætti sem Framsóknarflokkurinn eigi að fá eftir kosningar, ef allt gengur eftir. Það er nefnilega svo að það er miklu auðveldara ð láta utanaðkomandi einstaklinga víkja úr ráðherraembættum en þingmenn. Við sjáum til hvort þetta sé ekki í raun það sem hangir á spýtunni.
mbl.is Áhersla á velferðarmálin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef staðan yrði önnur en hún er i dag. Hvernig myndu sjálfstæðismenn standa að ríkisstjórnarmyndun?

Ef forseti veitti þér umboð á þessari stundu. Hvernig myndir þú reyna að mynda ríkisstjórn?

Kv. Síðuhaldari

Gunnar Sigurðsson (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 13:40

2 identicon

Gefum þeim smá tíma.

Þið í einkahagsmunaklúbbnum höfðuð nú aðeins lengri tíma til að rústa landinu.

Grettir (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 14:47

3 Smámynd: Tiger

Mér finnst það gott mál ef þau eru að vinna að aðgerðarmálefnum/sáttmála til lengri tíma litið. Ef þær aðgerðir/sá sáttmáli gengur vel fram að kosningum þá er það bara sjálfgefið að þeim sáttmála verði haldið áfram eftir kosningar, ef ekki - nú þá bara verður ný ríkisstjórn að gera nýjan sáttmála.

Mér finnst það sparnaður á tíma og fé ef þau eru að horfa til lengri tíma en bara nokkurra vikna.

Ef það er ætlunin að koma Framsókn inn í stjórnina eftir kosningar þá finnst mér það gott mál að hafa utanaðkomandi fólk í þeim stöðum sem Framsókn hugsanlega fengi. Slíkt auðveldar hlutina eins og þú segir.

Tiger, 30.1.2009 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 389904

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband