Leita í fréttum mbl.is

Bágt

á ég að trúa því að VG fengi svona fylgi í kosningum. Það er nefnilega einfalt að vera fúll í skoðanakönnunum en kjósendur eru þegar í kjörklefann kemur bæði skynsamir og ábyrgir. Og það er ekki, að mínu mati, ábyrgt að kjósa VG. Enda hvaða lausnir er VG með núna? Engar. Ögmundi vafðist tunga um höfuð þegar hann var fyrir viku spurður um það hvaða lausnir VG væri með vegna ástandsins. Hann átti engin svör.
mbl.is VG stærsti flokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða lausnir eru á ástandinu?  Þú gangrýnir Ögmund fyrir að hafa ekki komið með lausnir, nefndu þá nokkrar lausnir á ástandinu fyrst þú ert í betri flokki en hann!  Þú hlýtur að vera með lausnir fyrst þú sérð ástæðu til að gagnrýna hann fyrir að vera ekki með þær...?!

Væri ekki yndislegt ef einhver maður gæti bara komið með lausnir að öllum vandamálum svona einn tveir og sjö?!  Þá þyrfti nú ekki öll þessi ráðuneyti, með sína spekúlanta, hagfræðinga, lögfræðinga og hvað ekki!  Og þá þyrfti nú ekki ráðherra því þeir væru óþarfir, af því við hefðum manninn sem kæmi upp með allar lausnirnar og öll svörin!

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að missa mikið fylgi, og það skiptir ekki máli hvort það er 10, 15 eða 20%, fylgið er á niðurleið.  Og það besta er að það þarf ekki að leita að svörum um hvers vegna, flokkurinn sjálfur, eða öllu heldur flokksforystan hefur séð um það alein og óstudd.

I. Skúlason: "þegar út í alvöru er komið..."  Hvað kallar þú bullandi verðbólgu, himinháa vexti, stigmagnandi atvinnuleysi, ónýtan gjaldmiðil, gjaldeyrishöft, gjaldþrot í massavís, húsnæðismissi og ráðþrota ríkisstjórn sem hunsar almenning, annað en alvöru??  Í alvöru, ert þú í alvöru?  

Sá sem snýr sér að múrvegg, sér ekkert nema múrvegg...

Illugi (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 21:18

2 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

Ef kosningar verða ákveðnar í apríl n.k. þá þurfa allir flokkar að vera með framtíðarsýn. Nú komast VG upp með það að vera á móti án þess að koma með lausnir.

Ef þið Sjálfstæðismenn viljið horfast í augu við vandamál næstu ára ættuð þið að vera fylgjandi kosningum næsta vor.

Sigurður Haukur Gíslason, 2.12.2008 kl. 01:19

3 Smámynd: Þór Jóhannesson

Vandamálið er ekki VG - auðvita fengju þeir ekki svona risakosningu en það eru hin öflin, sem þið óttist meira en VG sem myndu fara nærri því að þurka út Sjálfgræðgisflokkinn þinn og þess vegna eru þið á móti lýðræðislegum kosningum - en fólkið mun vinna! Kúgun ætti ekki að vera eitthvað sem lögfræðingar mæla með - eða er það e.t.v. eins og með annað í þessum blessað flokk þínum, flokkurinn ofar ÖLLU hjá þér líka?

Þór Jóhannesson, 2.12.2008 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband