Leita í fréttum mbl.is

Athyglisverður dómur

Ég sé ekki betur en að þessi dómur sé í raun í samræmi við dómvenju sem hér hefur skapast varðandi ábyrgð á meiðandi ummælum. Það merkilega er að verið er að beita ákvæðum prentlaga með lögjöfnun. En ég sé ekki betur en að það sé fullkomlega eðlilegt. Ég held að flestum sem fylgjast með skrifum í bloggheimum ofbjóði oft orðfæri sem bloggarar nota. Engin ástæða er til annars en að gera þá sem blogga ábyrga fyrir ummælum sínum jafnt og hægt er að gera þá sem tjá sig í öðrum miðlum ábyrga. Í raun má merkilegt teljast að ekki skuli hafa reynt á þessa ábyrgð fyrr. Dóminn í heild má lesa hér.
mbl.is Dómi líklega áfrýjað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fullkomnlega sammála. Dómur hæstaréttar yrði fordæmisgefandi, og leiddi til breytingar á lögum, sannarlega. Ljóst að hér þurfa menn að gæta orða sinna sem og á prenti.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 20:12

2 Smámynd: Þorsteinn Sverrisson

Sæl Dögg. Mér finnst þessi dómur allt of harður og vegið að tjáningarfrelsinu.  Það má finna fjölmörg dæmi um viðlíka orðalag á netinu.  Ég nefni nokkur dæmi hér.  T.d. orð Egils Helgasonar frá 2005 um að ef Bobby Fischer sé á móti gyðingdómi þá sé hann rasisti og líklega haldinn sjálfshatri.

Fara lögfræðingar að leita svona dæmi uppi og hvetja menn til málsókna?

Þorsteinn Sverrisson, 26.2.2008 kl. 20:39

3 Smámynd: Jónína Benediktsdóttir

En hver ber ábrygðina á nafnlausum bloggum ?

T.d bloggum sem eru inn á google.is eða malefnum.com eða einkamalum.is og barnalandi.is

Eitt er að vera persónulegur í skrifum sínum um fólk annað að gagnrýna af ákveðni og hörku orð fjölmiðla, stjórnmálaflokka, viðskiptablokka, og annarra sem um er rætt hverju sinni.

Það er samt merkilegt hvað margur almenningur trúir nafnlausum bloggum um fólk og heldur áfram í þvælunni. Gerist dómari um menn og málefni út frá nafnlausum níðbloggum um einstaklinga. Mér finnst það stundum fyndið að finna andúð á mér fyrir eitthvað sem sagt hefur verið um mig á nafnlausu bloggi. T.d. að ég hljóti að vera bitur af því að ég hef verið að gagnrýna viðskiptaglæfraskapinn og fákeppni og synjun forsetans á fjölmiðlalögum, um okurvexti um einkavæðinguna svo eitthvað sé nefnt. 

Jónína Benediktsdóttir, 27.2.2008 kl. 13:42

4 Smámynd: Alexander Kristófer Gústafsson

Þessi dómur er kjaftæði, tjáningarfrelsi skiptir öllu.

Alexander Kristófer Gústafsson, 27.2.2008 kl. 14:56

5 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Þetta er nú nokkuð vandræðalegur dómur þar sem þeir sem lesa bloggið gera það á eigin ábyrgð og með eigin vilja.

Þeir sem skrifa ráða því ekki hverjir lesa og þar sem ritfrelsi ríkir í landinu er þá ekki frjálst að skrifa?

Sigurður Sigurðsson, 27.2.2008 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 391615

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband