Leita í fréttum mbl.is

Spilin á borðið

Umfjöllun um sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy í nýtt fyrirtæki, Reykjavík Energy Invest vekur óþægilega tilfinningu um að ekki sé allt á borðinu. Af hverju fengu tveir nafngreindir einstaklingar að kaupa í upphaflega Reykjavík Energy Invest og annar tryggði sér stjórnarformennsku í kjölfarið? Og keypti hann upphaflega á genginu 1 eða á hvaða gengi fékk hann að kaupa? Þetta gerðist í byrjun síðasta mánaðar (sjá hér).

Ef ég er að skilja rétt frétt Morgunblaðsins í dag þá fá sumir að kaupa í nýja félaginu á genginu 1,28 á meðan aðrir mega kaupa í því á genginu 2,77. Ef þetta er rétt þá er augljóst að þeir sem fá að kaupa á 1,28 eru að fá gefins talsverða peninga miðað við gengið sem hinir eru að kaupa á. Og þá auðvitað gef ég mér að fyrirtækið muni ganga vel og gengið á því hækka.

Ég hélt að tími ákvarðana af þessu tagi væri liðinn. Ég skil vel að borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins sé ekki alveg sáttur. Ég tek undir með leiðarahöfundi Morgunblaðsins í dag. Það verður að leggja öll spilin á borðið í þessu máli.


mbl.is Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins á fund Geirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Sæl Dögg, spáðu í það hvað Bjarni Ármannsson og Guðmundur Þóroddsson munu græða þegar upp er staðið. Bjarni fékk að kaupa fyrstur, gærddi hálfan milljarð.
Hvað munu hinir eiginlega gærða mikið?
Hvernig á að líta á þetta? Er ekki verið að verðlauna menn full mikið?

Kolbrún Baldursdóttir, 5.10.2007 kl. 20:42

2 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæl. Ég bendi á nýjustu skoðun mína um þetta mál.

Kveðja,

Sveinn Hjörtur , 5.10.2007 kl. 21:50

3 identicon

Eindregið haltu þessu til haga.

pbk

Páll Bragi Kristjónsson (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 23:13

4 Smámynd: Njörður Lárusson

Hæfir menn, kosta sitt.  Hversu mikið, þeir eiga að kosta, verður endalaust hægt að deila um.  Að öðru leyti finnst mér einkennilegt hvað mörgum er uppsigað við þennan gjörning, þ.e. samstarf/sameiningu REI og GGE, og ádeilu á eignarhald.  Er ekki betra að opinberu orkuveiturnar eigi í þessu fyrirtæki, frekar en ekki ? Hvert haldið þið að verkfræðingarnir, og allir aðrir starfsmenn orkuveitnanna með sérþekkingu fari, ef að eignatengslin verða slitin. Auðvitað til einkafyrirtækisins, sem væntanlega mun geta borgað betur, og verður þá í þeirri aðstöðu að selja opinberu orkuveitunum (sem verða lamaðar eftir atgervisflóttann) alla sérfræðiþjónustuna. Einkafyrirtækið mun rukka neytendur orku á Íslandi um það sem því hentar.  Þá fáum við að sjá alvöru orkureikning, um hver mánaðarmót.

Njörður Lárusson, 5.10.2007 kl. 23:26

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það finnst mér furðulegast að Júlíus Vífill sagði í dag í útvarpinu að borgarstjórinn nyti fyllsta trausts borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Maður fyllist ógeði á þessari lágkúru allri. Svona  var einu sinni kallað svindl og svínarí. 

Sigurður Þór Guðjónsson, 6.10.2007 kl. 01:14

6 Smámynd: Guðrún S Hilmisdóttir

Ég hef verið að spá í þetta með lögmæti fundarins í Orkuveitunni þar sem ákvörðunin var tekin.  Ef ég skil rétt málið þá ákvað fundarstjórinn að þar sem allir stjórnarmenn væru viðstaddir fundinn og hefðu ekki gert athugasemdir við fundarboðun væri fundurinn löglegur.  Spurningin hjá mér er þá varðandi hvað lá fyrir í fundarboðuninni að taka ætti fyrir á fundinum.  Ef það var klárt þá hefði Svandís Svavars átt að mótmæla strax í upphafi fundar eða hvað?  

Guðrún S Hilmisdóttir, 6.10.2007 kl. 08:20

7 Smámynd: Júlíus Valsson

Mér virðist sem hér sé nýtt kvótamál í uppsiglingu, ef menn gæta ekki að sér.

Júlíus Valsson, 6.10.2007 kl. 11:41

8 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst það miður Dögg að þú skulir aldrei blanda þér í athugasemdirnar sem þú færð.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.10.2007 kl. 12:27

9 identicon

Það er óþefur af þessu máli.

Og svo vegna athugasemdar B.Á. í sjónvarpinu, um að einhverjir 3 hefðu gert fyrirtækið verðmæt með vinnu sinni, og væru þess vegna verðugir meiri kaupréttar, þá hafa þessir einstaklingar sennilega verið á sínu kaupi, í samræmi við menntun og störf, svo ég held að þeir eigi bara að sitja við sama borð og aðrir sem þarna eru.

Ef á annað borð, það eigi nokkrir að fá að kaupa á lægra gengi en markaðsgengi. 

Þeir eru bara að sópa að sér eign almennings. Ég kann ekki við að skrifa það sem ég er að hugsa núna. En það er allavega refsiverður gjörningur. 

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 15:55

10 identicon

Sæl Dögg - ég skrifaði einmitt grein um pólitíska spillingu í Framsóknarflokknum í moggann í vor - þar sem ég tel upp nokkrar framkvæmdir í þeirra stjórnartíð sem eru í takt við orkuveitumálið núna - enda kom ekkert af þessu mér á óvart fyrst Framsókn er með í borgarstjórn - birti greinina inná blogginu mínu líka:

http://asagreta.blog.is/blog/asagreta/entry/325900/

Ása (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband