Leita í fréttum mbl.is

Langar helgar

Mikið eru svona langar helgar ljúfar. Maður leggur af stað inn í helgina með langan lista af verkefnum sem maður ætlar að sinna og ljúka. Og nú er kominn mánudagur og ekkert af því sem var á listanum hefur verið afgreitt (kannski næst eitthvað af því fyrir miðnætti). Það þýðir þó ekki að setið hafi verið auðum höndum. Ég hef notað tímann til að sinna sjálfri mér, fjölskyldu og vinum. Það er mikilvægt að gera það líka og raunar fátt mikilvægara þegar upp er staðið.

Veðrið hefur leikið við okkur þó lofthiti hefði mátt vera meiri. Það hefur því verið frábært að njóta góða veðursins í útiveru, bíltúrum og göngutúrum. Ég fór á laugardaginn í langan bíltúr um Stór-Reykjavíkursvæðið með foreldra mína. Það er hreint ótrúlegt að sjá hvað byggðin er orðin mikil kringum Elliðavatnið, bæði Kópavogs- og Reykjavíkurmegin (Norðlingaholtið). Grafarholtið heldur áfram að stækka og nú er byrjað að byggja í Úlfarsfellshlíðum. Í gær fór ég í langan göngutúr um Hafnarfjörðin með góðri vinkonu. Hafnarfjörð þekki ég ekkert sérlega vel þótt ég fari þangað reglulega vegna vinnunnar (dómhúsið við Thorsplanið). Það var því sérlega ánægjulegt að ganga um og kíkja á bæinn, sem er auðvitað fallegur, eins og flestir staðir í sólskini. Ég byrjaði síðan daginn í dag með Guðnýju þjálfara og við gengum stafgöngu frá Laugarnesi og niður að Sólfari og aftur tilbaka. Hressandi. Afmælisveisla framundan og svo að reyna að grynnka eitthvað á verkefnalistanum.

Verst að næsta langa helgi er ekki fyrr en um verslunarmannahelgina og engir frídagar þangað til, nema þeir sem maður tekur af sumarfríinu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 391618

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband