Leita í fréttum mbl.is

Hvað er til ráða?

Á geðlæknisfræðin eða sálfræðin virkilega enga leið til að meðhöndla menn sem haga sér svona fyrirlitlega og valda óbætanlegum skaða? Það liggur við að manni finnist að dusta eigi rykið af ákvæðunum í lögum nr. 16/1938 um afkynjun þegar maður les hrylling af þessu tagi.
mbl.is Dæmdur í 3 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

....bara þroskaheftum dætrum ?

Þetta er útbreiddara vandamál en hinn almenna mann grunar, þó að þroskaheftir og/eða fatlaðir einstaklingar séu í mjög miklum áhættuhóp.

Kveðja Inga 

Inga Lára Helgadóttir, 21.5.2007 kl. 20:36

2 identicon

Svona verknaður er hreinn og klár viðbjóður. Það þarf eitthvað að laga dómana í svona málum og nýta refsiramman betur en gert er í dag

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 21.5.2007 kl. 21:48

3 identicon

Ég efast um að geðlæknisfræðin eigi lausnir á þessu, enda hafa geðlæknar aldrei læknað neinn, eins og fram kemur í ágætum pistli og videói frá geðlæknaráðstefnu hér.   Geðlæknar eru aðallega í því að halda uppi lyfjafyrirtækjum.   En hvernig var það í gamla daga; voru ekki svona menn bara vanaðir?

Bjarni M. (IP-tala skráð) 21.5.2007 kl. 23:07

4 identicon

Það vakna margar spurningar og helst kemur upp í hugann að höggva ákveðna líkamshluta af þessum gerendum.  En í dag erum við víst orðin siðmenntuð og megum ekki grípa til svo róttækra aðgerða þrátt fyrir ógeðslega glæpi.

Hvað á þá að gera gagnvart hópi manna sem finnst sjálfsagt að nota börn til kynlífsathafna og ræna þeim jafnvel í þessum tilgangi??   Þetta umræðuefni er að mörgu leyti tabú vegna þess að það kemur óþægilega við fólk að þurfa að horfast í augu við svo ljótan sannleika.  Auðvitað er víðsvegar í heiminum barist á móti þessari þróun og það er ekki hægt að líða svona svívirðilegt athæfi.  Sem betur fer lifum við í fámennu samfélagi hér á Íslandi þar sem auðveldara er að fylgjast með.

Bryndís Júlíusdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 09:10

5 identicon

Ég tek undir orð Daggar um ákvæða laga nr. 16/1938 um afkynjun og tel að þeim eigi að beita í öllum tilvikum þar sem um ítrekuð kynferðisbrot er að ræða og mat sérfræðinga er að mikil hætta sé á endurteknum brotum. Steingrímur Njálsson er gott dæmi um slíkt og er í rauninni óverjandi að þeim manni sé sífellt leyft að eyðileggja fleiri líf.

 Ég get hinsvegar ekki orða bundið þegar ég sé tillögur eins og þessa um að snúa sönnunarbyrði við eða felli niður þá grunnreglu Íslensks réttarfars að menn sé saklausir þar til sekt er sönnuð.

"3) Lögfesta"austurríska leiðina", þ.e. að fjarlægja megi ofbeldismann/konu af heimilinu í tiltekin tíma ÁN dómsúrskurðar."

Algerlega óverjandi er að láta tilfinningarök leiða til þess að horfið sé frá réttarvernd sakborninga að einhverju leyti. Dómsúrskurða er krafist fyrir aðgerðum sem skerða mikilvæg réttindi manna til þess að grunur einn nægi ekki til þess að gripið sé til slíkra úrræða.

Sá viðbjóður sem við finnum til þegar við íhugum glæpi gegn varnarlausum börnum má ekki verða til þess að við styðjum glæpsamlega framgöngu ríkisvaldsins gegn þeim sem ásakaðir eða grunaðir eru um slíka glæpi.

Garðar St. Ólafsson (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 13:40

6 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Eitt annað, það þarf meira fjármagn inn í heilbrigðisstéttirnar til að fá fagfólk til að SINNA fólkinu, það veit ég

Inga Lára Helgadóttir, 22.5.2007 kl. 19:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 391618

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband