Leita í fréttum mbl.is

Droplaugarstaðir

Ég fór ásamt fleiri frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins í heimsókn á hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði í dag. Þar eru 82 rými, allt í einbýlum með sérsnyrtingum. Greinilegt er að íbúarnir eru ánægðir og láta vel af aðstæðum sínum og aðbúnaði. Enda er aðbúnaður á heimilinu til stakrar fyrirmyndar.

Nokkra íbúa reyndist ég þekkja frá gamalli tíð, m.a. karl sem bjó í sama stigagangi og ég í Eskihlíðinni á sjötta og sjöunda áratugnum. Hann mundi vel eftir mér og systkinum mínum úr blokkinni þegar ég sagði honum hverra manna ég er. 

Þetta var skemmtilegur klukkutími. Ég átti gott spjall við marga íbúa, sem allir tóku mér vel þótt ég væri að ónáða þá í kaffitímanum. Fram kom hjá mjög mörgum að þeir hefðu aldrei kosið annað en Sjálfstæðisflokkinn og ætluðu svo sannarlega að halda því áfram í komandi kosningum. Það var ég auðvitað ánægð að heyra.

Eftir drjúgt spjall við nokkrar konur um ágæti Sjálfstæðisflokksins, forystu hans og stefnumál kom í ljós að ein kvennanna er móðir eins af formönnum stjórnarandstöðuflokkanna. Náði ekki einu atkvæði þar en hinar voru mjög jákvæðar. Smile

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Ef frambjóðandinn skyldi ekki vita það, þá býða 400 aldraðir eftir plássum á hjúkrunarrýmum og svo er fjöldinn af fólki sem ekki býr á einbýlum. Hefur ekki eitt einasta pláss verið opnað í Reykjavík síðan Sóltún var opnað? Hvernig skyldi standa á því? Er það roluháttur ríkisstjórnarinnar sem veldur eða þess sem fer með fjármálinn nú og fyrr?

Auðun Gíslason, 24.4.2007 kl. 01:41

2 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Frambjóðandinn veit vel af biðlistanum eftir hjúkrunarrými. Það sem meira er, frambjóðandinn veit að meginskýring á þessum vanda í Reykjavík eru syndir R-listans sem gerði nánast ekkert í uppbyggingu húsnæðis fyrir aldraða á þeim 12 árum sem hann var við völd.

Dögg Pálsdóttir, 24.4.2007 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 391618

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband