Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Gott Sumarljós

Áhorfendur tóku Sumarljósi afburða vel enda góð sýning. Það eru orð að sönnu sem segir í kynningu Þjóðleikhússins á verkinu: ,,... undir kyrrlátu yfirborði krauma óhamdar ástríður, langanir og þrár." Mannleg náttúra er alls staðar eins, hvort sem er í litlu plássi úti á landi, hér í Reykjavík eða úti í hinum stóra heimi. Sýningin er algerlega kvöldstundarinnar virði. 
mbl.is Sumarljósið frumsýnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers?

Ég verð að segja eins og er - ég hef ekki hugmyndaflug til að átta mig á því hver ætti að hafa áhuga á upplýsingum um meðalgreiðslutíma hjá hverjum einstaklingi. En ég er fegin því að Persónuvernd er þarna á vaktinni. Sé ekki annað en að þarna sé verið að safna upplýsingum upplýsinganna vegna. Og því eins gott að samþykkja það ekki.
mbl.is Lánstrausti hafnað í þriðja sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvikindislegur prestur?

Að trúa á jólasveininn er partur af barnæskunni. Svo kemur að því , missnemma, að börnin uppgötva að jólasveinninn er ekki til. Allt er þetta liður í þroskaferli barna. Mér finnst það lítið hafa með heiðarleika að gera að afhjúpa þennan sannleika fyrir börnum. Eiginlega finnst mér það meira kvikindislegt en heiðarlegt og skil vel að foreldrum mislíkaði.
mbl.is Heiðarlegur prestur „eyðilagði jólin fyrir börnunum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var eins gott

að páfinn sagði á undan hverri jólakveðju á hvaða tungumáli hin næsta væri. Annars er ekki alveg víst að við hefðum skilið hver var sú íslenska og líklegt að eins sé farið um jólakveðjuna á fleiri tungumálum. Páfinn á þó þakkir skildar fyrir viðleitnina. Gleðileg jól.


mbl.is Páfi sagði „Gleðileg jól"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól

Mér sýnist margir hafa sleppt jólakortunum þessi jól og senda jólakveðjurnar frekar með nýtískulegri aðferðum eins og sms-skilaboðum eða tölvupósti. Af fréttinni má ráða að útvarpskveðjunum hafi fjölgað frá síðasta ári. Gegnum facebook.com og bloggið á mbl.is berst einnig ógrynni jólakveðja til þeirra sem á þessum miðlum eru.

Sjálf sleppti ég jólakortunum þetta árið og gaf í staðinn andvirði jólakortanna og kostnaðar við sendingu þeirra til innanlandsstarfs Hjálparstofnunar kirkjunnar.

En jólakveðjunum vil ég ekki sleppa. Því sendi ég hugheilar jólakveðjur til allra, nær og fjær með von um að jólin verði friðsæl, falleg og ánægjuleg hjá okkur öllum. Gleðileg jól.


mbl.is Nærri 3.000 jólakveðjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má örugglega endurskoða

Spurningin er hvort fulltrúar verkalýðsfélaganna séu eitthvað meiri fulltrúar sjóðfélaga en fulltrúar atvinnurekenda. Eðlilegast væri að fulltrúar sjóðfélaga sjálfra sitji í stjórnum lífeyrissjóða. Engir hafa meiri hagsmuna að gæta en þeir varðandi ávöxtun sjóðanna og kostnað við rekstur þeirra.
mbl.is Vilja atvinnurekendur úr stjórnum lífeyrissjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ánægjuleg stund

Þetta var sannarlega ánægjuleg stund á skrifstofu rektors Háskóla Íslands í dag (mánudag) þegar formlega var gengið frá stofnun Minningarsjóðs Bjargar Magnúsdóttur ljósmóður og Magnúsar Jónassonar bónda. Það var vel við hæfi að til stofnfundar valdist sá dagur, þegar dag tekur að lengja á ný - dimmasti tími ársins að baki og vonandi allt bjartara framundan. Rausnarlegur arfur Soffíu Þ. Magnúsdóttur tryggir a.m.k. nokkrum námsmönnum árlega styrk til framhaldsnáms í ljósmóður- eða hjúkrunarfræðum.
mbl.is Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar styrktir til framhaldsnáms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Reykjavíkurborg

Það er greinilegt að margt hefur breyst hjá Reykjavíkurborg eftir að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tók við stjórnartaumum í ágúst sl. Það er sérstaklega jákvætt að hvorki eigi að hækka fasteignagjöld né útsvar og fjölga eigi gjalddögum fasteignagjalda. Allt sýnir þetta skilning á aðstæðum borgarbúa. Þá er greinilegt að tekin hafa verið upp ný vinnubrögð - sem einkennast af meiri samvinnu milli meirihluta og minnihluta en áður hefur þekkst. Það er auðvitað sérstaklega eftirtektarvert að frumvarp að fjárhagsáætlun skuli vera afrakstur samvinnu aðgerðarhóps borgarráðs sem skipaður er fulltrúum meirihluta og minnihluta. Allt þetta sýnir hvað hægt er að gera með breyttum áherslum og vinnubrögðum.
mbl.is Borgarsjóður verði rekinn hallalaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá forseta Íslands

Það er gott hjá forseta Íslands að óska eftir því að hans laun sæti sömu lækkunum og laun ráðherra og alþingismanna. Stjórnarskrárákvæði eru á þann veg að breyting kjara forseta Íslands á kjörtímabili eru óheimil. Ekkert kemur þó í veg fyrir að kjörunum sé breytt, óski forsetinn eftir því sjálfur. Með þessu frumkvæði er forseti Íslands að tryggja að laun hans lækki, væntanlega frá 1. janúar nk. Mér finnst fráleitt að kalla þetta frumkvæði forsetans hræsni, eins og mér sýnist að sumir bloggarar eru að gera. Þvert á móti sýnir frumkvæðið að forsetinn er meðvitaður um það sem í gangi er og vill að yfir hann gangi það sama og ýmsa aðra embættismenn.

Svo þarf auðvitað að taka umræðuna um hvort embættið er nauðsynlegt eða ekki. Boðað hefur verið að fjárlög 2010 þurfi að sýna enn meira aðhald en fjárlög 2009. Við hljótum því að þurfa að fara ítarlega yfir alla starfsemi sem fjármögnuð er með skattfé. Forsetaembættið er þar ekki undanskilið og tengist ekki þeim einstaklingi sem í embættinu situr.


mbl.is Ólafur Ragnar fer fram á launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á maður að trúa þessu?

Mér finnst lágmark að aðilar sem eru með hótanir af þessu tagi sýni þann kjark að koma fram undir nafni.
mbl.is Auglýsendum DV hótað með válista?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 389904

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband