Leita í fréttum mbl.is

Umhugsunarefni

Var virkilega ekki hægt að finna konu með engar óheppilegar tengingar sem þessar til að fylla þetta sæti í bankaráðinu? Og ef það var ekki hægt hefði verið tilvalið að finna karlmann með engar óheppilegar tengingar því það vill svo til að í þessu bankaráði eru eingöngu kvenmenn. Þar hefði því verið tilvalið að setja eins og einn karlmann í viðleitni til að hafa bæði karla og konur í sama bankaráðinu ... 

Þó Ísland sé lítið land þá á ekki að þurfa að bjóða upp á að svona stöður komi upp.


mbl.is Skuldar milljarða og eiginkona forstjórans í bankaráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar Sigurðsson

Sæl Dögg,

Finnst þér virkilega að þetta sé málefnalegt?  Eginmaðurinn er starfsmaður, nánar tiltekið framkvæmdastjóri félags sem upphaflega tilheyrði Búnaðarbankanum og síðar Kaupþingi og var selt þaðan.  Starfsmaðurinn þiggur vissulega laun en er ekki hluthafi og því langsótt að hann beiti eiginkonu sinni sér til framdráttar.  

Arnar Sigurðsson, 20.8.2009 kl. 21:01

2 identicon

Fullkomnlega sammála Arnari. Þú ættir nú að þekkja inná hvernig þessi fasteignafélög virka og því ætti varla að koma þér á óvart hlutfall veðsetninga í þessu tilfelli.

Hvar er glæpurinn í þessu máli?

Skoðum í alvörunni staðreyndirnar.

1. Eik skuldar 15 milljarða í Kaupþingi.

2. Eignir Eikar eru metnar á 20+ milljarða um síðustu áramót (sjá heimasíðu Eikar)

3. Fasteignafélög í eðli sínu eru skuldsett félög, talið er að um 70-90% veðsetning fasteigna sé normið með fasteignafélög.

4. Það er ekkert í fréttinni sem segir að Eik hafi fengið fyrirgreiðslu hjá Kaupþing eða að félagið eða forstjóri þess hafi hagnast á einhvern hátt með því að eiginkona forstjórans sitji í stjórn Kaupþings.

5. Öll lánin eru veðsett á eignir félagsins. Það er nákvæmlega sama veðsetning í gangi þarna og er á heimilum þúsunda íslendinga, lán eru þinglýst á eignir og þær veðsettar fyrir lánunum.

Tomas (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 00:32

3 Smámynd: Dögg Pálsdóttir

Það er engin að tala um glæpi. Það er verið að tala um óheppilegar tengingar. Hæfi viðkomandi bankaráðsmanns almennt talað dregur enginn í efa. Það er hæfið til að sitja í bankaráði undir þessum kringumstæðum sem er til umfjöllunar. Á þessu verður að gera stóran greinarmun.

Dögg Pálsdóttir, 21.8.2009 kl. 07:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband