Leita í fréttum mbl.is

Getur

fv. forstjóri gamla Kaupþíngs sagt nokkuð annað en þetta?

Af hverju er yfirleitt verið að fá álit hans á lánveitingum gamla Kaupþings til stærstu eigenda sinna? Frá honum munu engin önnur svör koma en að allt sem bankinn, sem hann stjórnaði, gerði hafi verið fullkomlega löglegt. Ef hann myndi svara þessari spurningu með öðrum hætti væri hann um leið að viðurkenna fullkominn ásetning um ólögmætar lánveitingar til stærstu eigenda bankans.

Það er  í höndum annarra en fv. forstjóra Kaupþings að meta hugsanlegt saknæmi lánveitinga stjórnenda gamla Kaupþings vikurnar og mánuðina fyrir hrun, og yfirleitt, til stærstu eigenda og aðila tengdum þeim. Sem betur fer. 


mbl.is Hreiðar Már segir lánin lögleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl, Dögg.

 Það er styrkur fyrir mig , og mína líka, að  reyndur og vel metinn lögfræðingur tjái sig með þeim hætti. sem þú gerir.

Takk

Kolbrún Bára (IP-tala skráð) 2.8.2009 kl. 15:10

2 identicon

Við fáum líkleg botn í þetta eftir 5 ár þegar sérstakur saksóknari skilar sínu.  En hvað með hluthafa Kaupþings sem ekki voru í hópi stærstu eigenda - geta þeir höfðað mál á hendur Hreiðari og félögum fyrir að hafa vísvitandi eða af gáleysi valdið félaginu tjóni og fyrir að hafa ráðstafað þessum lánum til tengdra stærstu eigenda og tengdra aðila án þess að leita eftir óháðu mati á þvi hvort um væri að ræða viðskipti eða greiða?

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 3.8.2009 kl. 03:12

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Þráinn, auðvitað eiga hluthafar gömlu bankanna að kæra stjórnir og stjórnir fyrir bruðl og óráðsíu. Ofurlaunin og bónusarnir voru náttúrlega ekkert annað en þjófnaður á eignum bankanna og þar með hluthafanna. Það hljóta einhverjir lögfræðingar með þokkalega siðferðisvitund að sjá sóknarfæri fyrir hönd hluthafanna í þessu. Eða eru íslensk lög virkilega svo illa hugsuð að þau gera það eitt að vernda glæpamenn fyrir almenningi.....?

Ómar Bjarki Smárason, 3.8.2009 kl. 13:09

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Það sem er vandamálið í öllu þessu er að þessir menn líta virkilega svo á hlutina, að þeir hafi ekki gert neitt rangt og að hér hafi verið um fullkomlega löglega gjörninga að ræða.

Jón Ásgeir, Hannes, Björgúlfur og fleiri sjá sín viðskipti sömu augum. Þeir voru ekkert að brjóta lög, þeir voru að stunda heiðarleg en áhættusöm viðskipti og töpuðu.

Það sem ég óttast mest af öllu er að þessir menn verði allir sýknaðir fyrir dómi, því íslenskri löggjöf í þessum efnum sé svo ábótavant að allur þessi "sóðaskapur" teljist til "löglegra viðskipta". 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 3.8.2009 kl. 13:27

5 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Það er einmitt vandamálið í löggjöfinni, Guðbjörn. Það er hugsanlegt að það falli einhverjir dómar eftir 3-5 ár um ólögleg innherjaviðskipti. Það veður líklega allt og sumt. Það hljóta að vera til einhver siðferðislög, því meðferð stjórna og stjórnenda bankanna á almanna fé var náttúrulega algerlega siðlaus og rúmlega það. Það getur vel verið að þetta hafi flest rúmast innan einhvers þröngs lagaramma, en siðleysið var algjört, og náði e.t.v. til margra þiggjenda líka. Hvað vit er t.d. í því að stjórnendur einnhverra "lítilla fyrirtækja" hér uppi á Íslandi ferðist um í einkaþotum og þyrlum. Því líkt rugl.....

Og að menn skuli hafa getað vaðið inn í bankana og fengið milljarða að láni til að kaupa fasteignir í New York, London og hver má vita hvar... á meðan heiðarlegir viðskiptavinir bankanna þurfa að leggja fram veð í fasteignum eða undirskriftir eins eða fleiri vina og ættingja til vegna smáupphæða. Og bankar veiti svo lán til starfsmanna og tengdra aðila til kaupa á hlutabréfum í bönkunum sjálfum er náttúrulega alveg sórundarleg ráðstöfun, sem er algerlega siðlaus og hlýtur að vera lögleysa í öllum réttarríkjum, nema e.t.v. hér á Íslandi.

Ómar Bjarki Smárason, 3.8.2009 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband