Leita í fréttum mbl.is

Ekki bestu ...

Það er meira en athyglisvert að umboðsmaður AGS hér á landi skuli ekki treysta sér til að fullyrða að Icesave-samningarnir sem náðst hafa séu ,,bestu fáanlegu samningarnir sem fáist".

Með slíkum ummælum er gefið skýrt í skyn að betri samningum hefði mátt ná. En formaður samninganefndarinnar vildi ekki hafa viðfangsefnið sem honum var falið lengur hangandi yfir sér. Hans eigin orð í viðtali við Morgunblaðið fyrir skömmu.

Gott væri að fá frekari rökstuðning frá þessum ágæta umboðsmanni AGS um það af hverju hann telur öruggt að Icesave-skuldbindingin muni ekki setja okkur á hliðina.

Einkenni allrar umræðu um Icesave eru fullyrðingar. Hvernig væri nú að stjórnvöld fari að ræða um þetta mál í röksemdum og útskýringum í stað fullyrðinga. Þá er kannski einhver von til þess að við förum að skilja af hverju það er svona nauðsynlegt fyrir okkur að samþykkja þessa Icesave-skuldbindingu. Það er skýrt að meðan þjóðin skilur ekki af hverju við verðum að samþykkja Icesave-skuldbindinguna mun þjóðin ekki sætta sig við hana. Rökstuðning og útskýringar takk. Því fyrr, því betra.


mbl.is Þjóðarbúið ekki á hliðina vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ægir

Eru þessir herra menn ekki að passa skuldir okkar fyrir kröfuhafana?

Ægir , 28.6.2009 kl. 14:45

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Það er svo augljóst að þeir eru hér eingöngu til þess að verja hagsmuni þessara tveggja þjóða, annað getur bara étið skít.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 28.6.2009 kl. 14:57

3 Smámynd: Kjartan Björgvinsson

Þó ég sé gersamlega sammála seinni hluta færslunnar þá verð ég að benda á að það væri enn undarlegra ef einhver myndi treysta sér til að dæma um að hvaða samningur sem er sé sá besti mögulegi. Fullyrði menn slíkt er það það sama og að segjast vera alvitur og það eru einungis íslenskir stjórnmálamenn sem komast upp með slíkt án þess að vera settir í meðferð hjá geðlækni.

Með von um betri tíð og lægri vexti

Kjartan Björgvinsson, 28.6.2009 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband