Leita í fréttum mbl.is

Merkilegt

Þessar niðurstöður koma á óvart því öll umræðan í þjóðfélaginu endurspeglar mikið óþol í garð ríkisstjórnarinnar og endalauss aðgerðarleysis hennar. En það er fagnaðarefni fyrir ríkisstjórnina að 61% landsmanna skuli styðja hana. Vonandi hvetur sú staðreynd ríkisstjórnina til einhverra dáða, fjölskyldum og fyrirtækjum til heilla. Eftir því bíður þjóðin óþreyjufull.
mbl.is Stuðningur við stjórnina eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæra Dögg. Fyrst ber að athuga að þetta er netkönnun sem hlýtur að auka vægi yngri kjósenda á kostnað þeirra eldri. Draga má í efa að gildi þessarar kannanar sé nógu mikið.

Víst er það að margir voru fremur óánægðir með nýleg skattaskref ríkisstjórnarinnar. En raunar höfðu fáir áhyggjur af hækkunum sem slíkum. Verðhækkun  á tóbaki og áfengi gerir fáa andvaka og fólk er vant stöðugum sveiflum í bensínverði. Reiðin hefur ekki síst bitnað á olíufélögunum sem að venju flýttu sér að hækka verðið þótt bensínbirgðir sem þegar eru í landinu sæti ekki hækkuðum sköttum. En fólk hafði aðallega áhyggjur af því að hækkuð neysluvístala (um tæplega 1%) hefði slæm áhrif á húsnæðislán.

En hér kemur að mætti gagnsefjunar. Flestum, sem eitthvað þekkja til mála, ofbauð talnakúnstir Tryggva Þórs Herbertssonar í málinu. Auk þess nýtur hann almennt lítils trauts.

E.t.v. voru það fleiri en ég sem bjuggust við miklu ítarlegri og kostnaðasamari aðgerðum eftir fundinn í Þjóðminjasafninu en raun var á. "Fjallið tók jóðsótt og fæddist lítil mús"! Við vorum óánægðir með hve aðgerðirnar voru litlar og hefðbundnar.

Mikill meirihluti þjóðarinnar veit að hrunið skapaði mikla erfiðleika, ekki síst fyrir ríkissjóð, orsakar fjárlagahallann sem þarf að taka á, annað hvort með niðurskurði eða hækkuðum sköttum nema hvort tveggja sé. Ég held að það sé ekki sterkur leikur hjá Sjálfstæðis- eða Framsóknarflokkum að leggjast SAMEIGINLEGA gegn hækkuðum sköttum. Ég hygg að þessi 61% sem sagt er að styðji ríkisstjórnina, óttist niðurskurð miklu meir en hækkaða skatta.

Gísli Gunnarsson 

Gísli Gunnarsson (IP-tala skráð) 2.6.2009 kl. 00:19

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég bíð....

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 2.6.2009 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 391627

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband