Leita í fréttum mbl.is

Ánægjulegar niðurstöður

Árið 1996 byrjaði ríkisstjórnin markvissar aðgerðir í forvarnarmálum. Nýjar áherslur voru lagðar þar sem samvinna við heimilin var ákveðin þungamiðja auk samvinnu allra sem að þessum málum koma. Samhliða var mikill metnaður lagður í að árangur forvarnarstarfs yrði reglulega mældur með könnunum, bæði erlendum samvinnurannsóknum eins og hér er skýrt frá og með innlendum könnunum.

Árangurinn hefur smátt og smátt verið að koma í ljós. Hann staðfestist enn frekar með þessum niðurstöðum. Enda er "íslenska módelið" í forvarnarmálum orðin fyrirmynd og grunnur samstarfs Evrópulanda í forvarnarmálum. Rannsóknarstofnunin Rannsóknir og greining hélt nýlega upp á 10 ára afmæli sitt, en hún hefur verið leiðandi afl í rannsóknarvinnu á þessu sviði. Þar kom fram að "íslenska módelið" er einnig til skoðunar í Bandaríkjunum og Asíu.

Ég kom að vinnu í þessum málum á árunum 1996 - 2002, en þá var í gangi átaksverkefið Ísland án eiturlyfja. Við sem að þessum málum komu höfðum bjargfasta trú á því að þetta módel sem lagt var upp með væri lykillinn að árangursríku forvarnarstarfi meðal barna og unglinga. Niðurstöður rannsókna, síðast þessarar, virðast staðfesta þetta. 

Nú skiptir öllu að þetta góða forvarnarstarf haldi áfram af fullum krafti. Forvarnarstarfi lýkur aldrei. Sama hvað góðar tölur koma úr rannsóknum.


mbl.is Reykingar og drykkja íslenskra unglinga með því minnsta sem gerist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Markvissar aðgerðir, fela þær í sér forræðishyggjuna að hafa tóbak og áfengi bara nógu dýrt til þess að unglingar hafi ekki efni á því?

Það er kannski ágætis leið til þess að réttlæta verðlagið á þessu með því að segja að þetta sporni gegn unglingadrykkju og tóbaksneyslu unglinga.  En um leið eru þetta ekki marktækar niðurstöður þar sem að verðið á tóbaki og áfengi er miklu lægra í öllum öðrum löndum.

Óli (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 14:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband