Leita í fréttum mbl.is

"He lied"

Ég er í Bandaríkjunum þessa dagana og fylgist auðvitað með öllu varðandi forkosningarnar. Aðaldagurinn er í dag - og margt mun skýrara í kvöld en það er þessa stundina.

Ég ræddi í gærkvöldi við nokkra Bandaríkjamenn um hver þeir teldu líkleg úrslit úr þessum forkosningum. Öll voru þau sammála um það að líklegra væri að Obama yrði frambjóðandi demókrata en Clinton en ekkert þorði þó að fullyrða að svo yrði - " I wouldn't bet money on it" eins og einn orðaði það. En öll voru þau líka sammála um það að ef Clinton verður frambjóðandi demókrata þá sé nánast víst að frambjóðandi repúblikana, hver sem hann verður, vinni forsetakosningarnar. Þau sögðu öll að andstaða hægri sinnaðra og frjálslyndra Bandaríkjamanna við Clinton hjónin væri slík að þeir myndu flykkjast á kjörstað til þess eins að styðja andstæðing hennar.

Og þegar ég spurði af hverju andstaðan við þau væri svona mikil - var aðalsvarið: "He lied" og var þá verið að vísa til þess að Bill Clinton hefði sagt ósatt í Lewinsky málinu. En eins og allir muna þá sagði Bill Clinton fyrir rétti: "I did not have sex with that woman" eða eitthvað í þá áttina. Upp komu síðan vangaveltur um það hvort hann hefði skrökvað eða ekki. Allt fór það eftir því hvernig hver og einn skilgreindi hvað er kynlíf og afhjúpaði að mínu mati betur en nokkuð annað ákveðinn tvískinnung Bandaríkjamanna á því sviði. Er það furða þó t.d. Frakkar hafi aldrei skilið um hvað Lewinsky málið snerist um.

En kvöldið verður spennandi - og ég er vondaufari fyrir hönd "míns" kandidats eftir umræðurnar. En við skulum spyrja að leikslokum. Og nýjustu fregnir herma að lhugsanlega muni það þeirra sem ekki vinnur verða varaforsetaefni þess sem vinnur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur

Það væri óskandi að íslenskir kjósendur hefðu svona gott minni og refsuðu stjórnmálamönnum fyrir afglöp sín.

Ingólfur, 5.2.2008 kl. 15:24

2 identicon

það virðist ýmislegt benda til þess að obama muni sigra  hann hefur allvega mikinn meðbyr og auk þess keppast frægar persónur að lýsa stuðningi við hann td. kennydy ættin eins og hún leggur sig ogfl. Hann virkar líka miklu frískari og ég held að óákveðnir munu flykkjast um hann þegar á reynir., held að margir vilji einfaldlega taka áhættu og breyta til. ekki clinton aftur þótt það sé frúin núna.

steiner (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 15:40

3 Smámynd: Sema Erla Serdar

GO OBAMA !!!

Sema Erla Serdar, 5.2.2008 kl. 17:24

4 Smámynd: Ólafur Als

steiner:

Kennedy ættin eins og hún leggur sig styður ekki Obama. Alla vega tvö, ef ekki þrjú, barna Roberts Kennedy styðja Clinton. Frú Clinton mun seint reynast sameiningartákn fyrir bandaríska kjósendur - en Obama og McCain gætu hins vegar náð svo langt. Sjálfur vonast ég til þess að McCain sigri en gæti allt eins hugsað mér Obama. Báðir afar hæfir frambjóðendur, hvor með sínum hætti.

Góða skemmtun þarna vestra,

Ólafur Als, 5.2.2008 kl. 18:22

5 Smámynd: Auðun Gíslason

Athyglisvert hvað margar skynsamar manneskjur hafa mikinn áhuga á gervilýðræðinu í BNA!

Auðun Gíslason, 5.2.2008 kl. 20:36

6 identicon

Ég styð Omama, frúin er búin að stjórna með sínum eiginmanni og ég held að USA og þar með heimurinn allur hafi gott af fersku blóði í pólitíkana.

Þórgunnur Hjaltadóttir (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 21:54

7 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Hver voru þessi "öll"? Hissa ef þú hefur ekki rekist á aðdáendur Hill & Bill. Monicu málið var algjör tilbúningur republikana. Þeir eyddu gífurlegum upphæða í rannsóknanefndir þar sem þó nokkrir lykilmenn urðu uppvísir að ofbeldi gegn konum. Bill steig hliðarspor með konu utan hjónabands sem að hefur gerst áður og á eftir að gerast. Það var með vilja beggja og á ekki erindi í einhverja sakrannsókn. Bjó í Bandaríkjunum á þessum tíma og hann byggði framburð sinn á orðabók sem gaf merkinguna "having sex" sem "intercourse" og samkvæmt því var hann ekki að ljúga. Þessi "öll" hafa verið eitthvað "moral majority" gengi.

Gunnlaugur B Ólafsson, 7.2.2008 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband