Leita í fréttum mbl.is

Málefni foreldra með sameiginlega forsjá

Fréttir herma að sumarþingi eigi að ljúka á morgun. Ég var að kíkja á þingmálin og stöðu þeirra. Meðal þeirra mála sem á að ljúka er þingsályktunartillaga um aðgerðaáætlun til fjögurra ára til að styrkja stöðu barna og ungmenna. Á heimasíðu Alþingis má sjá að síðari umræða var í dag og að þingnefnd leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt (sjá http://www.althingi.is/altext/134/s/0016.html).

Meðal þess sem gera á skv. tillögunni er að skipa nefnd er fjalli um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra. Vonandi mun þessi nefnd vinna fljótt og vel og nefndarálitinu síðan hrundið í framkvæmd í stað þess að verða skúffufóður í ráðuneyti, eins og svo oft verða örlög góðra nefndarálita.

Ennfremur vona ég að verksvið þessarar nefndar verði rýmkað og að henni verði einnig falið að skoða ýmislegt varðandi réttarstöðu foreldra, sem ekki búa saman en sem fara sameiginlega með forsjá barna sinna. Eins og staðan er í dag telst eingöngu foreldrið sem er með lögheimili barnsins vera einstæða foreldrið. Hitt foreldrið er - ja ég veit eiginlega ekki hvaða hugtak á að nota yfir það. Því hvergi er tekið tillit til þessa foreldris. Það er hvorki forsjárlaust né einstætt en samt með sameiginlega forsjá yfir barninu.

Á fyrsta feðradeginum í nóvember 2006 lofaði félagsmálaráðherra því að tekið yrði til skoðunar að gera foreldrum í þessari stöðu kleift að bæði hefðu lögheimili barna sinna. Í því felst að bæði njóta réttarstöðu sem einstætt foreldri og þar með myndu þau skipta milli sín þeim stuðningi sem hið opinbera veitir einstæðum foreldrum. Þetta er mikilvægt hagsmunamál.

Fleira þarf að skoða í þessu sambandi, s.s. greiðslu meðlags þegar foreldrar með sameiginlega forsjá ákveða að börnin búi til skiptis hjá þeim, jafnt á báðum stöðum. Í slíkum tilvikum er vafasamt að greiðsla meðlags eigi rétt á sér því báðir sinna framfærsluskyldum sínum með jafnri búsetu. En það þarf að tryggja að báðir foreldrar taki jafnan þátt í þeim útgjöldum sem barni fylgja, s.s. dagvistunarkostnaði, skólaskjólskostnaði, fatakostnaði, tómastundakostnaði o.s.frv.

Mikilvægast er þó að drífa í því að breyta barnalögum þannig að dómstólum verði gert kleift að dæma sameiginlega forsjá eins og frændur okkar Danir hafa nú lögfest og gengur í gildi hjá þeim 1. október nk. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að umrædd nefnd geri tillögu um það.

Ef öllu þessu tekst að koma í höfn á næstu misserum þá hafa náðst mikilvægir áfangar fyrir börn og foreldra með sameiginlega forsjá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Sammála því að þurfi að taka þessi mál upp og skoða í heild sinni. Ég tel það einnig afar brýnt að staða stúpfjölskyldunnar  verði skoðuð á sama tíma. Málin eru náskyld! Stjúpfjölskyldan  eru nánast ósýnileg í opinberri umræðu og stefnumótun  og er hún  minnihlutahópur hvað varðar stöðu í íslensku samfélagi - en ekki stærð.

Stærsti hluti einstæðra foreldra fer í sambúð að nýju og því þarf að huga að því hvað tekur við - t.d. hvað varðar fjármál, foreldrasamvinnu og opinberan stuðning. 

Það má segja frá því í lokin að í undirbúningi er, fyrir frumkvæði Félags stjúpfjölskyldna,  þverfaglegt málþing sem halda á í byrjun næsta árs  um málefni stjúpfjölskyldunnar.

Valgerður Halldórsdóttir, 13.6.2007 kl. 12:52

2 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Já staða þessa hóps er vægast sagt undarleg... Að forsjárlausir foreldrar geti verið 'skilgreindir' sem barnlausir í kerfinu. 

Aðalheiður Ámundadóttir, 13.6.2007 kl. 13:06

3 Smámynd: Gísli Gíslason

Dögg þetta er gott innlegg.  Við þurfum upplýsta umræðu um þessi mál.   Eins og staðan er í dag þá er sameiginleg forsjá fín í orði en rýr á borði.  Þessu þarf að breyta, svo að réttur barna til að alast sem mest upp hjá báðum foreldrum sé tryggður.  Ég skrifaði eitt sinn grein í Morgunblaðið sem hét "Barnlausir" foreldrar.  Þar vakti ég athygli á því að báðir foreldra hafa  alltaf sömu farmfærsluskyldu en mjög ólíka skattalega stöðu.  Greinina má lesa hér.  

Gísli Gíslason, 13.6.2007 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband