Leita í fréttum mbl.is

Vangaveltur

Það er fróðlegt að kíkja á heimasíðu Alþingis (www.althingi.is) og sjá þau þingmál sem dreift var í dag, fyrsta dag nýs Alþingis eftir kosningar. Mest eru þetta auðvitað stjórnarfrumvörp, sem sum hver tengjast framkvæmd málefnasáttmála stjórnarflokkanna.

Þingmenn vinstri grænna hafa verið iðnir og duglegir á þeim liðlega tveimur vikum sem liðnar eru frá kosningum því þeir leggja fram fjögur af tíu fyrstu þingmálunum. Laglega gert hjá þeim. Sennilega hefur þetta verið eina leiðin hjá  þeim til að vinna sig útúr vonbrigðunum yfir að klúðra vinstri stjórninni sem þeir voru búnir að láta sig dreyma svo fallega um. Aðrir stjórnarandstöðuflokkar komu óundirbúnir, a.m.k. var engum þingmálum þeirra dreift í dag.

Athygli vekur beiðni vinstri grænna um skýrslu frá forsætisráðherra um samninga, viljayfirlýsingar og fyrirheit ráðherra í aðdraganda kosninga, nánar tiltekið frá 6. desember 2006 og þar til ríkisstjórnin lét af störfum. Beiðnin um skýrsluna í heild sinni er hér: www.althingi.is/altext/134/s/0005.html

Í greinargerð með beiðninni segir m.a.

Það var áberandi á síðustu mánuðum og vikum fyrir nýliðnar alþingiskosningar hvað einstakir ráðherrar og ráðuneyti þeirra sýndu skyndilega mikinn áhuga á að styðja ýmiss konar verkefni og gera vel við ýmsar stofnanir og félagasamtök með skriflegum samningum og fyrirheitum til næstu ára.

Ég átta mig ekki alveg á þessu hjá vinstri grænum. Eins langt aftur og ég man þá hefur síðasta hálfa árið fyrir kosningar einkennst af því að byggingar eru teknar í notkun eða hornsteinar lagðir, vegarspottar og brýr vígðar, samningar gerðir o.s.frv. Gildir þetta jafnt um aðdraganda alþingiskosninga og sveitarstjórnarkosninga. Ég er nokkuð viss um það að ef skoðað er tímabilið frá 6. desember 1990 til alþingiskosninga 1991 þá kæmi í ljós að ráðherrar Alþýðubandalagsins, forvera vinstri grænna, í þeirri stjórn sem þá var við völd voru nákvæmlega jafn duglegir við þessa hluti og ráðherrar í síðustu ríkisstjórn. Það er eðli stjórnmálanna að ljúka á síðustu mánuðum fyrir kosningar sem mestu af því sem búið er að undirbúa og vinna að á kjörtímabilinu.

Skýrsla eins og sú sem vinstri grænir eru að kalla eftir segir ekkert nema að í henni verði samanburður við fyrri ár. Ég held það væri ráð að skýrslan sem þeir eru að biðja um hefði slíkan samanburð að geyma og að sérstaklega yrði kannað tímabilið frá 6. desember 1990 til alþingiskosninga 1991.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Egilson

Um beiðni vinstri-grænna: Á engan hátt óeðlilegt að fara fram á slíka úttekt. Reyndar væri fróðlegt að gera slíka úttekt fyrir samsvarandi tímabil mikið lengra aftur í tímann. "Kosningavíxlamynstur" eins og það birtist almenningi fyrir nýafstaðnar kosningar elur á tortryggni. -Svo getur maður líka verið með söguskýringar!!

Þorsteinn Egilson, 1.6.2007 kl. 06:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 389904

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband