Leita í fréttum mbl.is

Fleiri spældir

Ef marka má Reykjavíkurbréfið í Morgunblaðinu í dag þá eru fleiri en Framsókn og Vinstri grænir spældir yfir því að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar virðist vera í burðarliðnum. Morgunblaðið er svo súrt yfir þeim stjórnarmyndunarviðræðum sem í gangi eru að það hálfa væri nóg.

Vangavelturnar í  Reykjavíkurbréfinu eru með ólíkindum. Samsæriskenningar út og suður. Einhvern veginn fer þetta ekki Morgunblaðinu að láta svona. Síst af öllu ef blaðið ætlast til að tekið sé mark á því í pólitískri umræðu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

já mér finnst einmitt einkennilegt þetta með Moggann, þar sem hann hefur alltaf haft ákveðinn standard og talað er um að Mogginn ljúgi aldrei... ætli sé verið að stæla sorpritið DV.... eða hvað ?

Inga Lára Helgadóttir, 20.5.2007 kl. 16:40

2 Smámynd: Júlíus Valsson

Varla hefði Mogginn viljað sjá S+V. Ég get hreint ekki séð hvernið það hefði getað gengið upp. D+B var alltof veikburða nema þeir hefðu tekið F með í spilið og hver hefði svo sem viljað sjá þá í ríkisstjórn? Margrét Sverrisdóttir sem sjávarútvegsráðherra? Geir veit hvað hann er að gera en hvernig kemur hann í veg fyrir að ISG sprengi stjórnina þegar henni sýnist? Hver treystir henni? Best vær e.t.v. að gera hana strax að forsætisráðherra. Þá gæti hún orðið til friðs næstu árin a.m.k. Ekki öfunda ég Geir í þessari stöðu. Skyldi hann semja um fjölþrepa skattakerfi og tilvísanaskyldu í heilbrigðiskerfinu? Varla.  

Júlíus Valsson, 20.5.2007 kl. 16:52

3 Smámynd: Vilhjálmur Þorsteinsson

Af einhverjum stórfurðulegum ástæðum virðist Styrmir vilja D+V.  Mér er alveg hulið hvað ætti að koma út úr því.  Afturför í Evrópumálum, óbreytt landbúnaðarkerfi, stopp í einkavæðingu...  Hvað er Mogginn að hugsa?

Vilhjálmur Þorsteinsson, 20.5.2007 kl. 17:51

4 Smámynd: Grímur Kjartansson

Morgunkaffið stóð nú í mér um daginn þegar ég las á forsíðu Morgunblaðsins að ekki væri hægt að ræða við ISG vegna hroka. Þessi „frétt“ sýndi hug Morgunblaðsins til þeirrar stjórnar sem nú er að myndast á Þingvöllum og miðað við reykjavíkurbréfið í dag þá má búast við að Mbl. muni gera sitt besta til að eyðileggja þetta stjórnsamstarf.  Að halda því fram að mikilvægasta verkefni Sjálfstæðisflokksins  á næstunni sé að sleikja fýluna úr Frjálslyndaflokknum er náttúrlega ótrúlegur málaflutningur.

Grímur Kjartansson, 20.5.2007 kl. 21:46

5 Smámynd: Inga Lára Helgadóttir

Mogginn hefur komið mikið á óvart þessa dagana, hef reyndar aldrei séð Ingibjörgu eins yfirvegaða eins og einmitt síðustu daga

Inga Lára Helgadóttir, 20.5.2007 kl. 22:05

6 Smámynd: Þorsteinn Egilson

Skriðþungalögmálið (tregðulögmálið) í hnotskurn: Hlutur á ferð breytir ekki um stefnu nema til komi utanaðkomandi kraftur þvert á þá fyrri!!

Þorsteinn Egilson, 20.5.2007 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband