Leita í fréttum mbl.is

Að sýna í verki ...

Ég tek ofan fyrir Vilhjálmi Bjarnasyni að afþakka í Útsvari í kvöld gjafabréfið frá flugfélagi í eigu eins af útrásarvíkingunum. Með því sýndi hann í verki afstöðu sína til eins eiganda þessa fyrirtækis, forsögu hans og meintrar aðildar hans í hruninu. Kannski við ættum fleiri að fylgja fordæmi Vilhjálms, taka höndum saman og sýna í verki afstöðu okkar til útrásarvíkinganna með því að hunsa eins og við mögulega getum fyrirtæki þeirra?


mbl.is Afþakkaði gjafabréf í Útsvari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Að "Kjósa með fótunum" er hugtak sem á við á ýmsum sviðum - og m.a. þessu.

Þú hefur Dögg sjálf sem lögmaður notað þetta hugtak varðandi viðbrögð skilnaðarbarna sem hafa lent í hreint ömurlegri aðstöðu - og hafa nýtt sér fóta-ferðina :-).

Afl NEYTENDA hér á Íslandi hefur legið dautt hér þrátt fyrir s.k. "Neytendasamtök"  sem eru stein-dauð samtök. Óvirk nema að nafninu til.

Nú er tíminn að virkja þetta afl.  Afl neytenda, afl borgara.  Vilhjálmur hefur gefið fordæmið, en hann sýndi kjark og áræði í kvöld.

Kjósum með fótunum og hættum að skipta við forherta óreiðumenn Íslands.  Þá og aðeins þá mun þessu linna.

Ríkis-forsjáin dugar aðeins svo langt

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 10.4.2010 kl. 00:21

2 Smámynd: Hákon Þór Sindrason

Vel mælt hjá Hákoni Jóh, vantar alltaf samtakamáttinn og að sýna samtaka aflið.

Hákon Þór Sindrason, 10.4.2010 kl. 21:39

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Sammála þér Dögg og um þetta held ég að margir séu með líkar meiningar.  Vandinn er þó þannig að á stundum eru bara tveir kostir, sem er  að verða hungur morða, strandaglópur,  eða þá að beygja sig. 

Þó ég hafi lofað sjálfum mér að kaupa aldrei framar hjá þeim Bónus feðgum fyrir um fjórum árum, þá hefur það hent að aðrir kostir voru ekki í boði.  Slík er nú hagsmuna gæsla þess fyrirtækis við almenning

Hrólfur Þ Hraundal, 10.4.2010 kl. 21:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Dögg Pálsdóttir
Dögg Pálsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband